158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[11:15]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður segir hvorki mér né öðrum þingmönnum hér inni hvað þeir segja í pontu. Það gerum við bara sjálf og ákváðum sjálf. Og af því að hv. þingmaður rifjaði upp fyrri ummæli sín um einræðisstjórnir og Norður-Kóreu þá held ég að hv. þingmaður ætti aðeins að átta sig á því hvað felst í þeim orðum. Í Norður-Kóreu snýst þetta ekki bara um að það sé einn miðill á markaði heldur snýst þetta um með hvaða hætti sá miðill fær leyfi til að matreiða upplýsingar. Stjórnvöld á Íslandi hafa ekki, hvorki nú eða fyrr mér vitanlega, bein afskipti af fréttamati og fréttaflutningi fjölmiðlanna og heldur ekki Ríkisútvarpsins, svo það sé á hreinu. Það er þetta hlutlæga hlutverk þeirra sem gerir það að verkum að þau njóta þrátt fyrir allt nokkuð mikils trausts hjá almenningi.

Þegar við kynntum aðgerðaáætlun í desember síðastliðnum, og ég bið hv. þingmenn bara að fletta því upp af því að þetta er allt aðgengilegt í hinum stafræna heimi, kom forstjóri Sýnar og rakkaði einmitt ekki niður tillögurnar heldur taldi að það væri margt í þeim ágætt. Auðvitað var ýmislegt sem þau hefðu viljað hafa öðruvísi. Það hefur alveg verið rætt, þar eflaust og víðar, að það væri mikilvægt að það væri einn stór styrktur einkaaðili sem sinnti almannaþjónustu í landinu. Norðmenn fóru þá leið en þeir buðu það auðvitað út á Evrópska efnahagssvæðinu og sama hefðum við þurft að gera. Þannig að fyrir utan hversu mikla fjármuni það kostaði þá hefðum við alveg eins getað fengið einhvern fjölmiðil frá útlöndum, eins og danska fyrirtækið TV 2 sem starfar sem almannaþjónustufyrirtæki í Noregi og er bara alveg ágætt. Við fórum þess í stað þá leið að bæta við 300 millj. kr. potti fyrir þau fyrirtæki sem búa yfir stærð og getu til að sinna ásamt Ríkisútvarpinu þessu almannaþjónustuhlutverki, (Forseti hringir.) sem geta sinnt kosningaumfjöllun, geta starfað á landsvísu, geta verið á vöktum allan sólarhringinn o.s.frv., og við munum auðvitað hrinda þessu í framkvæmd.