fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Þetta er það stór málaflokkur og stórt mál og staðan er það alvarleg í lýðræðislegu samhengi og í umræðu í landinu að okkur gefst svo sannarlega ekki tími til þess í stuttum andsvörum, einni mínútu og tveimur, að ræða þetta mál. En það kom neyðaróp síðastliðinn vetur þar sem varað var við þeirri leið sem ákveðið var að fara. Þetta tengist líka umræðunni um það hvort RÚV sé á auglýsingamarkaði eða ekki. Nú eru ríkismiðlar ekki á auglýsingamarkaði á hinum Norðurlöndunum og hefur á undanförnum árum, allra síðustu árum, sums staðar verið farið í gegnum hlutverk ríkismiðla, hvert það eigi að vera. Sú sem hér stendur hyggst leggja fram tillögu um það á allra næstu dögum að það verði gerð úttekt og greining á stöðu RÚV, (Forseti hringir.) að við greinum hvernig við viljum sjá hlutverk þess til framtíðar, og því langar mig að fá fram hjá hæstv. ráðherra: Myndi hæstv. ráðherra geta stutt það? Gæti verið hollt að skoða og greina hlutverk RÚV og stöðu þess í fjölmiðlaumhverfinu hér á landi?