fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Já, guð minn almáttugur. Ég held að það sé alltaf hollt að skoða hluti og greina og því betri og ríkari gögn sem við höfum, þeim mun líklegra er að við hröpum að réttum aðgerðum. Þetta er sannarlega stórt mál og við þurfum meiri tíma og ég fagna því auðvitað ef hv. þingmaður er að bjóða upp á meira svona samtal í þingsalnum. Við erum bara að horfa á þá stöðu að það er ekki bara það að auglýsingatekjur hjá einkamiðlunum hafi verið að minnka heldur líka hjá RÚV, vegna þess að það hefur verið mikil leitni úr landi. Þetta eru allar þjóðir í kringum okkur líka að reyna að glíma við. OECD reyndi að koma á samræmdri skattalöggjöf hjá sem flestum löndum en Bandaríkin drógu sig út úr því og tennurnar svona duttu úr því verkefni. Enginn hefur treyst sér til að ráðast gegn þessum tæknirisum þannig að þetta er erfitt mál. En, já, ég held að það sé gott að fá þessi gögn og skoða þau. Við getum líka auðvitað notað gögn frá öðrum löndum og við í ráðuneytinu höfum gögn frá Frakklandi, Spáni og Lettlandi þar sem þessi leið sem hv. þingmaður boðaði var farin og kemur ekkert sérstaklega vel út.