158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[11:31]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Ef menn vilja gefa sér það að háskólarnir muni ekki ná neinum árangri í neinu aðhaldi þá er staðan óbreytt en taki menn það verkefni alvarlega og takist að gera reksturinn betri og skilvirkari þá kemur þetta aukna fjármagn til viðbótar. Þessar 350 milljónir sem við hugsum til gervigreindar — sem er rosalega mikilvægt og þetta þyrfti eflaust að vera meira — við erum að gera ráð fyrir að 30% renni til uppbyggingar samfélagslegrar reiknigetu fyrir almenning, fyrirtækin og háskólann, tæplega 30% renni til þróunar reiknilíkans, íslensks mállíkans og annarra hluta samkvæmt aðgerðaáætlun um gervigreind, 20% til uppbyggingar þekkingar almennings þannig að allir geti og enginn verði skilinn eftir í þessari tækni, rúmlega 10% til íslenskra þjálfunargagna og tæplega 10% til miðstöðvar gervigreindar og máltækni.