158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[11:37]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans yfirferð. Það eru kannski fjórir, fimm punktar og það þarf stutt svör, þetta er stuttur tími. Mig langar að byrja á nýrri flugstöð á Reykjavíkurflugvelli. Nú blása nýir vindar um höfuðborgina, þar er nýr meiri hluti eftir sveitarstjórnarkosningar í vor og búið er að breyta raunverulega stöðunni gagnvart því að völlurinn standi, það er ljóst að hann verður a.m.k. til 2040. Ég veit að hæstv. ráðherra hefur áhuga á að byggja flugstöð í Reykjavík þannig að það væri áhugavert að fá fram hvernig það mál stendur.

Svo vil ég spyrja hvort það séu fyrirhugaðar einhverjar breytingar varðandi Loftbrúna. Hæstv. ráðherra hefur talað um að breyta henni og fyrir um ári síðan, tæpu ári, kom umræða um að breyta stuðningnum og fara mögulega yfir í krónutölu. Það væri ágætt að heyra hvernig það mál stendur.

Þá eru það framkvæmdir á Egilsstaðaflugvelli. Ég vona að þær byrji núna í haust, varaflugvallargjaldið verði nýtt í þær framkvæmdir, ég spyr hvort það sé ekki allt á góðri leið, framkvæmdirnar við hina svokölluðu lúppu á norðurenda flugbrautarinnar þar sem er mikilvægt fyrir vægi Egilsstaðaflugvallar sem varaflugvallar. Svo vil ég kannski koma líka inn á það að það hefur heyrst að það sé talað um að fækka flugferðum um þennan hring frá Akureyri til Vopnafjarðar, Þórshafnar og endað aftur á Akureyri, það eigi að fækka þeim ferðum niður í þrjár ferðir á viku í staðinn fyrir að þær séu fimm. Það væri ágætt að fá stöðu þess máls. Það eru þessir fjórir punktar núna og það þurfa að vera stutt svör ef það á að svara þeim á tveim mínútum og reyna að komast yfir punktana.