fjárlög 2027.
Frú forseti. Það er nefnilega mikilvægt að fara hið fyrsta í framkvæmdir við nýja flugstöð á Reykjavíkurflugvelli. Sú flugstöð sem hefur verið þarna síðan í seinni heimsstyrjöld, það er tímabilið sirka, er náttúrlega þjóðarskömm eins og staðan er þannig að ég vil bara spyrja: Er það forgangsmál hjá hæstv. ráðherra að fara af krafti í málið eða á þetta bara að sigla fram hjá eins og það hefur raunverulega gert áratugum saman? Þetta er andlit landsbyggðarinnar og andlit höfuðborgarinnar þegar flogið er til borgarinnar. Það er bara skömm að því hvernig staðið hefur verið að þessum málum um langt skeið.
Er þá von með Loftbrúna að þessar breytingar komi fram í fjárlögunum núna, kannski fyrir 2. umræðu eða hvernig er þetta hugsað?
Síðan með Fljótagöng, það hefur komið fram opinberlega að framkvæmdir hefjist 2027, á næsta ári. Er ráðherrann fullviss um að þær framkvæmdir fari af stað á næsta ári?