fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að óska ráðherra til hamingju með þann kraft sem hlaupinn er í innviðaframkvæmdir og samgöngumál en einnig í löggjöfina um jöfnunarsjóð. Það er fyrsta spurningin. Við boðuðum að næsti kafli í endurskoðun jöfnunarsjóðs væri að skoða grunnskólahlutann og ég vildi spyrja fregna af því. Í öðru lagi varðandi samgöngumálin þá var verið að birta niðurstöðu könnunar í dag sem bendir til þess að þriðjungur þeirra sem fara um á bíl á höfuðborgarsvæðinu myndi helst vilja nota virka ferðamáta. Þar eru það almenningssamgöngur og rafhjól sem skora hæst. Í ljósi þessara niðurstaðna — ef við mætum þessum stóra hópi yrði umferðin líka miklu betri fyrir þá sem vilja halda áfram að keyra — finnst ráðherra koma til greina að innleiða einhvers konar ívilnanir vegna rafhjólakaupa svipað og við sáum til bílaleigubíla, sem nú fylla göturnar, fyrir nokkrum árum og er vegna tiltekinnar gerðar rafhjóla? Hins vegar er spurningin hvort ráðherra sjái ekki fyrir sér, kannski þrátt fyrir fréttir fjölmiðla, að framkvæmdir við borgarlínu og samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins fyrir almenningssamgöngur haldi áfram af fullum krafti. Síðasta spurningin lýtur síðan að fjármögnun þessara gríðarlega miklu samgönguverkefna, líka á vegum Ganga og brúar, sem er nýja innviðafélagið okkar — hvort ráðherra telji ekki ákveðin sóknarfæri í því að uppfæra svokallaða TEN-T kort sem er í raun Evrópusambandskort yfir samgöngukerfi landsins sem nær til hringvegarins og lykiltenginga því að þá væri hægt að fjármagna þessar stóru innviðaframkvæmdir með hagstæðum lánum frá Evrópska fjárfestingarbankanum, t.d. inn í þetta félag — hvort það væri ekki jákvætt verkefni ráðuneytis og umhverfis- og samgöngunefndar á þessum vetri.