fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka ráðherra fyrir glimrandi svör og góð. Það er gott að heyra að við eigum von á grunnskólahluta jöfnunarsjóðs þegar þeirri vinnu er lokið. Ég skil vel að það geti verið flókin vinna en minni jafnframt á að það er skynsamlegt að vinna það á frumstigi með nefndinni þannig að við fáum innsýn í það. Ég fagna tóninum varðandi bæði rafhjól og borgarlínu og heyri að ég þarf að taka rafhjólin upp við umhverfisráðherra hér síðar í dag, eða einhver fyrir mína hönd sem fer í þá umræðu. Ég tek undir þetta varðandi fjármögnun samgöngusáttmálans, við þurfum að koma því fyrir vind. Ég veit að tímans vegna náði ráðherra kannski ekki að ávarpa TEN-T kortið og uppfærslu þess, en ég vonast til þess að það verði eitt af mikilvægum verkefnum vetrarins auk þess sem ég lauma þeirri hugmynd á flot að sirka einu sinni á ári væri gott að eiga stóran fund með innviðaráðherra um framkvæmd markmiðskafla eða aðgerðaáætlunar samgönguáætlunar sem stundum gleymist í umræðu um einstaka verkefni. Ég geri það kannski í byrjun nýs árs.