fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni fyrirspurnina. Varðandi grunnskólaframlagið þá er það mjög áhugavert. Þegar grunnskólinn var fluttur til sveitarfélaganna var útsvarið hækkað. 20% af þeirri hækkun fóru til sveitarfélaga til frjálsrar notkunar og 20% í jöfnunarsjóð. Endurskoðun á grunnskólaframlaginu felur í sér að lækka þessi 20% niður, kannski niður í 17 eða 18%, þannig að sveitarfélögin hafi meiri pening til frjálsrar notkunar; jöfnunarsjóður myndi minnka við það. Það er gríðarlega mikilvægt og þá er spurningin hvaða sveitarfélög spari mest og hvernig það raðast niður. Ég tek heils hugar undir það sem hefur verið sagt varðandi rafhjól og aðra virka ferðamáta og ég tel að við getum unnið þrekvirki þar. Reykjavíkurborg hefur svo sannarlega gert það með öllum sínum hjólreiðastígum. Varðandi fjármögnun höfuðborgarsáttmálans þá er það sérstakt verkefni. Það er gríðarlega mikilvægt verkefni og það tengist þessum flýti- og umferðargjöldum og við þurfum líka að huga að fjármögnuninni hjá Göngum og brú sem lýtur að veggjöldum.
Ég þakka ábendinguna varðandi TEN-T kortin (Forseti hringir.) sem ég svo sannarlega skoða og líka ábendingu um að hafa stóran fund um framkvæmd markmiða samgönguáætlunar. Það er atriði sem er ekki oft í umræðunni um samgönguáætlun. Þar er fyrst og fremst verið að horfa á framkvæmdatölurnar en ég tek það svo sannarlega til mín.