158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[11:53]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir yfirferðina um sína málaflokka. Mig langar að koma inn á nokkur atriði en ráðherra hefur sagt, reyndar ekki í dag en á fyrri stigum, að það sé, eðlilega, krafa um nútímavæðingu innviða. Hún er hávær hvert sem farið er og ég vil segja að það sé bara eðlileg krafa og réttmæt. Krafa er um bundið slitlag á malarvegi, sterkt símasamband, styttri vegalengdir og fleiri jarðgöng. Þetta eru allt fullkomlega eðlilegar kröfur enda sú ríkisstjórn sem ráðherrann á aðild að búin að hækka skatta svo verulega á venjulegt vinnandi fólk í landinu að það hálfa væri nóg. Þetta eru skattahækkanir sem hafa að miklu leyti verið settar á með vísan til þess að það vanti fjármagn til vegaframkvæmda þannig að það er eðlilegt að fólk ætlist til þess að þetta fari í vegina. En ríkisstjórninni finnst ekki nóg um og boðar enn frekari skattahækkanir á þetta sama fólk. Ráðherra hefur líka sagt að ríkisstjórnin hafi lagt fram skýra stefnu um uppbyggingu innviða í landinu og að það sé verið að gera stóra hluti í samgöngumálum. Ég vil bara benda á það að það er framkvæmdin sem skiptir máli og fjármögnun, eðlilega.

En aðeins um jarðgangamálin vegna þess að ég veit að hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson kom aðeins inn á það í sínu innleggi. Ráðherra og ríkisstjórnin öll hefur sagt að framkvæmdir við Fljótagöng, sem eru á vegum hins nýstofnaða innviðafélags Göng og brú ohf., hefjist af fullum þunga árið 2027. Það er þekkt að Fljótagöng eru ekki arðbær framkvæmd og þurfa þess vegna framlög frá ríkinu. Mig langar að biðja ráðherra um að upplýsa mig hvar áætluð framlög ríkisins til þessa verkefnis sé að finna í frumvarpi til fjárlaga vegna þess að ég fann það ekki í fljótu bragði. (Forseti hringir.) Síðan langar mig að spyrja ráðherrann: Hvar í þessu fjárlagafrumvarpi birtast áform ríkisstjórnar um að treysta stoðir hinna dreifðu byggða og jafna búsetuskilyrði?