158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[11:57]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Hann staðfestir það raunar að það eru engir fjármunir eyrnamerktir Fljótagöngum í fjárlögum. Og það er alveg rétt, betur má ef duga skal. En mig langar aðeins að ræða kílómetraskattinn sem ég veit að er raunar ekki beint á ábyrgðarsviði ráðherrans en samgöngumálin, byggðamálin og sveitarstjórnarmálin eru það sannarlega; 16% hækkun á kílómetraskattinum. Þetta er náttúrlega alveg svakalegt og þetta er aðgerð sem bitnar hvað harðast á þeim sem lengst þurfa að aka vegalengdirnar, á verstu vegunum og hafa ekki það val í samgöngum sem er hér á höfuðborgarsvæðinu.

Ég vil meina að þetta bitni harðast á landsbyggðinni og ég vil minna á að nú þegar hafa nokkur samtök sveitarfélaga ályktað gegn þessum áformum og kallað þau landsbyggðarskatt. Þess vegna vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Er ekki svolítið sannleikskorn í því að þetta sé kallaður landsbyggðarskattur og telur ráðherrann í alvöru þessa aðgerð verjandi, komandi úr landsbyggðarkjördæmi?