fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Varðandi kílómetragjaldið og hækkun þess þá er það ekki á málefnasviði mínu. Ég get hins vegar sagt það að í gamla kerfinu var bensíngjald þannig að ef þú keyrðir langar vegalengdir þá borgaðir þú hátt bensíngjald og vöru- og eldsneytisgjöld sem þar voru voru afnumin og sett í kílómetragjald. Og sá sem keyrir mikið borgar líka meira kílómetragjald heldur en sá sem keyrir minna. Alveg sama varðandi bensíngjaldið þannig að tala um þetta sem landsbyggðarskatt, það er ekki svo. Þessi umræða átti sér stað fyrir tveimur árum, árið 2024, og í fyrra líka. Þá fórum við mjög vel yfir þetta allt saman og þetta bitnar ekki verr á landsbyggðinni en öðrum landshlutum. Það var líka skoðað sérstaklega varðandi fátækt fólk. Það var ekki þannig. Rannsóknir sýna það. Við erum að breyta kílómetragjaldinu, hafa þetta eins og á rafbílum, það er það sem verið er að gera. Það er alveg rétt að ef þú keyrir meira þá borgar þú meira kílómetragjald, en þú borgaðir líka meira bensíngjald ef þú keyrðir meira í gamla kerfinu. Það er enginn munur þar á, þannig að ég vísa þessu algerlega til föðurhúsanna. (Forseti hringir.) Á árunum 2010–2017 voru 1,7% af þjóðarframleiðslu tekjur af bifreiðum og þær verða núna 1,6% þannig að við erum enn þá undir því sem var áður fyrr.