fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég vil þá spyrja hreint út og kannski fá bara stutt svar: Er þá ekki verið að hagræða þegar kemur að viðhaldi og nýframkvæmdum á næsta ári hjá Vegagerðinni? Miðað við þær tölur sem ég hef séð er töluverð hagræðing þegar kemur að því og það hlýtur að hafa áhrif á framkvæmdir. En mig langar líka til að spyrja út í skattahækkanir og hagræðingar í málaflokknum, vegna þess að nú skiptir gríðarlega miklu máli að við eflum byggðir um allt land. Við sjáum hér að það á að skera niður farsæld barna um 1,1 milljarða. Sóknaráætlanir landshlutanna eru að lækka um 400 milljónir. Það á að skera niður atvinnuráðgjafa á landsbyggðinni en samt sem áður er eitt af markmiðunum í fjárlögum hjá málaflokki ráðherrans að auka möguleika barna og unglinga og ungmenna í dreifðum byggðum til þátttöku í íþrótta- og æskulýðsstarfi og á sama tíma er verið að skera niður þennan hluta þegar kemur að farsæld barna. Þarna fer ekki alveg saman hljóð og mynd þannig að ég myndi gjarnan vilja fá að heyra þetta.
Varðandi framkvæmdirnar sem eru núna í samgönguáætlun. Miðað við þessi fjárframlög sem er verið að leggja til núna, munu þá engin verkefni falla út af borðinu sem voru samþykkt í samgönguáætlun þegar kemur að nýframkvæmdum?