158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[12:25]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Varðandi ákvörðun um útfösun á 2G og 3G þá var sú ákvörðun tekin árið 2022, svo að það liggi fyrir. Ég tók ekki þá ákvörðun. Það gerðu hins vegar markaðsaðilar. Þetta var gert á viðskiptalegum forsendum. Það er ekki heimild í lögum til að grípa inn í það en við erum búin að óska eftir skýrslu frá Fjarskiptastofu varðandi þessa útfösun og það var mjög ítarleg beiðni þar sem spurt var út í alla þætti þessa máls. Varðandi tíðniheimildirnar þá kynntu fjarskiptafélögin þessi áform um endanlega lokun á 3G um áramótin 2025. Þá kallaði Fjarskiptastofa eftir frekara áhættumati og greiningu á áhrifum lokunarinnar. Endanlegri lokun var í kjölfarið frestað fram á mitt ár 2026, eða um eitt ár, og byggði framkvæmdin á áhættumati félaganna og mótvægisaðgerðum, stigskiptri framkvæmd og upplýsingagjöf. Samkvæmt tíðniheimildum má útbreiðslan ekki verða lakari en með 2G og 3G. Fjarskiptastofa hefur beint tilmælum til félaganna um að uppfylla þau skilyrði og hyggst kortleggja útbreiðslu á landsvísu nú í september með aðkomu erlends sérfræðifyrirtækis en síðasta sambærilega mæling var gerð árið 2023. Varðandi rauðu tækin, símtæki sem leita í 2G og 3G þegar hringt er í neyð, þá voru þau 30.000 í ársbyrjun 2026, um 6.000 í júní og rúmlega 4.000 í ágúst. Við vinnum áfram að því að fækka þessum tækjum í samstarfi Fjarskiptastofu, fjarskiptafyrirtækja og Neyðarlínu. Ég held að ástæðan fyrir því að verið var að gera þetta sé sú að við erum ótrúlega nettengd og framarlega í fjarskiptamálum. Varðandi úttektina sem ég óskaði eftir, á því hvers vegna framkvæmdin hefði ekki gengið eins vel og áætlað var þrátt fyrir gríðarlegan undirbúning, þá vænti ég þess að fá skýr svör frá Fjarskiptastofu hvað þetta varðar. (Forseti hringir.) Ég vona að þetta svari því helsta sem þetta mál varðar.