fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég ítreka að þessi ákvörðun um útfösunina var tekin árið 2022 og þá í samstarfi við Fjarskiptastofu. Þótt kröfur séu gerðar um öryggi og gæði allrar fjarskiptaþjónustu eða farnetsþjónustu er hún ekki skilgreind í lögum sem neyðar- og öryggisfjarskiptaþjónusta heldur starfrækt á markaðslegum forsendum á ábyrgð einkaaðilanna. Engin lagaleg úrræði eru til staðar til að skylda fjarskiptafyrirtækin til að viðhalda úreltum farnetskerfum enda væru slíkar skyldur mjög íþyngjandi á jafn litlum markaði og Ísland er í alþjóðlegum samanburði þar sem rekstur farnetskerfanna felur í sér mikla landfræðilega útbreiðslu yfir hlutfallslega fáa viðskiptavini. Þetta er grundvallaratriði. Varðandi það þá réðu einkaaðilar tímasetningunni og engin þjóð hefur treyst sér til að banna afnám á 2G og 3G. Þetta er að vissu leyti framþróun, við erum að fá 5G og 6G. Þegar 5G kemur til sögunnar þá er það betri þjónusta og á að vera sama dekkun. (Forseti hringir.) Það eru hins vegar tækin sem eru úti.
Varðandi þetta með Baldur þá erum við svo sannarlega að vinna í því að þetta gerist ekki aftur. Við erum komin með eitt öflugasta dýpkunarfyrirtæki heims, (Forseti hringir.) a.m.k. í Evrópu, Jan De Nul, til að sjá um dýpkun í höfninni á Suðurlandi, í Landeyjum, og það er búið að kaupa tvo varamótora til að tryggja (Forseti hringir.) að viðbragðið verði meira ef vélin bilar og líka ef höfnin lokast. Það breytir því ekki að þetta verður líka erfiður vetur, eða getur orðið það. Herjólfur III er að verða haffær og við sjáum hvað við gerum þegar þar að kemur.
(Forseti (HildS): Forseti minnir þingmenn og ráðherra á að virða ræðutíma.)