fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið en engu að síður er ég enn þá pínulítið týndur og þarf að fá betri útskýringar frá hæstv. ráðherra hvað þetta varðar. Er það þá ekki alveg ljóst, miðað við svör hæstv. ráðherra, að Fljótagöng munu kalla á fjárauka á næsta ári til að brúa þann kostnað sem ríkið þarf að bera af framkvæmdinni? Það var alveg ljóst í umræðunni um innviðafélagið að Fljótagöng falla ekki undir markaðslegan hluta félagsins sem getur staðið utan A1-hluta. Ríkið þarf að borga 85%, ef ég man rétt, af Fljótagöngum. Það hlýtur þá að koma fjárauki á næsta ári til að greiða hlut ríkisins í þessum fyrsta fasa. Ef ég man rétt var áætlað í samgönguáætlun að það væru um 2,5 milljarðar sem það kostaði að fara af stað 2027.