158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[12:37]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég gleymdi einu atriði og það er varðandi Hornafjarðarfljót. Það á að hefja gjaldtöku núna og sú gjaldtaka, það tekjustreymi, mun fara inn í innviðafélagið, annaðhvort er tekjustreymið flutt beint, vegurinn og veghaldið hjá Vegagerðinni eða vegurinn plús veghaldið til innviðafélagsins, það eru þrjár sviðsmyndir hvað það varðar. Svo eru það líka Vaðlaheiðargöng sem eru skuldlaus, tekjuberandi eign fyrir innviðafélagið Göng og brú. Þá erum við komin með tekjuberandi eignir og svo að sjálfsögðu kemur hlutafjáraukningin. Ég skora á hv. þingmann að bera málið undir fjármálaráðherra líka varðandi tekjur og Fljótagöng. Það er alveg hárrétt að veggjöld munu ekki standa undir þeim. En til þess að félagið geti tekið að sér ábyrgð á fjármögnun og framkvæmd Fljótaganga þá kemur til skoðunar að auka hlutafé félagsins þannig að það hafi fjárhagslega burði til að standa undir verkefninu. Það er það sem við erum að gera með núverandi 6. gr. heimild, sem ég vísaði á. Það er fjallað um þetta mjög ítarlega á bls. 163 í greinargerð með frumvarpi til fjárlaga. (Gripið fram í.) Nei, það er eigið fé. Það er eiginfjárheimild sem kemur svo inn, (Forseti hringir.) annaðhvort í formi reiðufjár eða tekjuberandi eigna. Á endanum er það þannig að það eru samningar okkar við innviðafélagið. Vegagerðin er að vinna á fullu að undirbúningnum og það er gert ráð fyrir útboði í byrjun næsta árs.