158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[12:44]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ágætis inngang og það er auðvitað af mörgu að taka þegar kemur að mikilvægum málum sem heyra undir hæstv. ráðherra. Ég ætlaði hins vegar bara að nefna hér þrennt sem ég vildi kannski fá svör hæstv. ráðherra við. Í fyrsta lagi hefur verið mikil umræða um það hvernig gengið var fram í kjölfar hins svokallaða fjármálahruns, bankahrunsins, sem hafði auðvitað mikil áhrif, efnahagslega, en ágætlega vannst nú úr því í samanburði við aðrar þjóðir þó að skaðinn hafi auðvitað verið mikill. En af gildri ástæðu hefur formaður Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir, komið fram með þingsályktunartillögu um að setja af stað rannsókn á störfum réttarvörslu- og eftirlitsaðila í kjölfar fjármálahrunsins. Ég held að það sé óhjákvæmilegt að fara í það og ég held að við munum aldrei geta lokað þeim málum fyrr en við höfum gert það og líka lært af því. Það ætti að vera orðið nógu langt síðan til að við getum tekið málefnalega umræðu um það og skoðað það mál vel, þannig að ég spyr hæstv. ráðherra hvort hún styðji ekki slíka rannsókn.

Sömuleiðis myndi ég vilja spyrja um tvennt og kannski er ekki hægt að svara því öllu nákvæmlega en þó vildi ég heyra viðhorf ráðherrans. Annars vegar varðandi skaðabótalögin, sérstaklega varðandi líkamstjón og örorku, hvort við ætlum ekki að fara að endurskoða þann lagabálk og skoða hann sérstaklega í samræmi við það sem hefur gerst hjá nágrannalöndunum, og síðan að endingu varðandi sóknargjöldin. Eins og við þekkjum hefur verið gríðarlega mikil skerðing þar. Það snýr ekki bara að þessari ríkisstjórn eða viðkomandi hæstv. ráðherra en augljóst er að við verðum að hafa meira gagnsæi og sátt um það fyrirkomulag.