158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[12:46]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir spurninguna sem ég skil sem svo að hafi verið þríþætt. Í fyrsta lagi er það spurning um fjármálahrunið og þá vinnu sem þáverandi stjórnvöld fóru í, frumvarp Björns Bjarnasonar um sérstakan saksóknara, geri ég ráð fyrir, og vinnu í kjölfar þess, af því að þetta er nú umræða sem við höfum átt hér í þingsal áður. Mín afstaða til þessa málaflokks hefur verið sú að verði farið í þá vinnu að gera þennan kafla, sem er stór og veigamikill í íslenskri sögu, bæði aðdragandi fjármálahrunsins og eftirmál, þá skoðum við það heildstætt. Með því á ég við að færi Alþingi þá leið að skipa hér rannsóknarnefnd myndum við ekki eingöngu taka fyrir verk embættismanna heldur líka hver aðdragandinn var varðandi lagasetningu, að við skoðum andrúmsloftið og leikfléttuna í heild sinni. Ég veit til þess, eins og hv. þingmaður nefnir, að formaður Sjálfstæðisflokksins hefur lagt fram tillögu, eða a.m.k. boðað tillögu um þetta, og þá finnst mér skipta máli fyrir trúverðugleika slíkrar vinnu að hún sé heildstæð hvað það varðar að skoða þennan kafla í sögu Íslands.

Varðandi skaðabótalögin get ég a.m.k. sagt að þau eru ekki á þingmálaskrá í ár hjá mér en ég þekki þá umræðu sem hann vísar til og er almennt þeirrar skoðunar að vel fari á því að endurbæta lög þegar efni standa til þess. Um sóknargjöldin vil ég nefna að það er mér mikið gleðiefni að okkur sé loksins að takast að vinda ofan af því og rétta hlut kirkjunnar af því að kirkjan hefur — talandi um hrun — verið eina stofnunin sem enn hefur ekki fengið hlut sinn bættan eftir skerðingar hrunsins. Þannig að ég er mjög ánægð með að það hafi tekist í vinnunni í tengslum við fjárlagafrumvarpið núna.