fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir yfirferðina á þeim mikilvægu málaflokkum sem eru á hennar forræði. Ég vil aðeins beina sjónum að öryggis- og varnarmálum sem voru í umræðu fyrir atkvæðagreiðsluna um Evrópusambandið, eða til umræðu að hluta til. Að vísu held ég að þau hafi síst ráðið úrslitum hjá meiri hluta kjósenda en þau komu upp og voru m.a. nefnd af ýmsum, þ.e. þessi breytta staða í öryggis- og varnarmálum sem væri jafnvel ástæða til þess að fara inn í Evrópusambandið. Það er auðvitað breyttur heimur og blikur á lofti og að mínu mati þessi óásættanlegi tónn og ósmekklegi tónn sem maður hefur lítinn húmor fyrir af hálfu t.d. Bandaríkjastjórnar núna með myndbirtingum síðustu daga en auðvitað margir aðrir þættir, aðrar grundvallarbreytingar og hreyfingar í alþjóðamálunum. Í því umhverfi, þegar ríkisstjórnin leggur áherslu á þetta breytta umhverfi, eins og ég skil fjárlögin, er í raun og veru verið að lækka framlögin að raunvirði um 0,3% gagnvart öryggisþættinum. Landhelgisgæslan lækkar um 5% í útgjöldum. Ef þetta eru rangar tölur getur hæstv. dómsmálaráðherra lýst því en þær birtast manni í fjárlögunum.
Ég vildi forvitnast um það hjá hæstv. dómsmálaráðherra hvernig hún lítur á þessi mál, hvort hún telji sannarlega að Íslendingar séu að gera nóg til þess að huga að sínum eigin vörnum ef mönnum er alvara um breytt ástand í öryggismálum, hvort það myndi ekki kalla á raunverulega uppbyggingu hérna innan lands. Það mætti auðvitað ræða í því sambandi stofnun eiginlegrar herdeildar, stofnun íslensks hers. Hvernig lítur hæstv. ráðherra t.d. á þann möguleika? Hún nefndi að við værum herlaus þjóð en auðvitað er herlaus þjóð, ef hún ætlar að vera fullvalda og sjálfstæð, þeim takmörkunum háð a.m.k. að hafa ekki her. Það er auðvitað líka eitthvað sem mér finnst alveg eðlilegt að taka til umræðu, þ.e. hvert viðhorf hæstv. ráðherra er úr því að öryggismálin og varnarmálin eru í þessu ástandi sem þau eru og hvernig hæstv. ráðherra og ríkisstjórnin þar með lítur á t.d. hugmyndir um að stofna íslenskan her (Forseti hringir.) ef þeim er alvara um þessa breyttu stöðu í varnarmálum en það á ekki að nota hana sem tæki … (Gripið fram í.) — Já, ég er að spyrja um það.