fjárlög 2027.
Frú forseti. Já, þingmaður verður að afsaka að ég heyrði ekki spurninguna í fyrstu en ég heyri hana nú. Fyrst varðandi Landhelgisgæsluna, aðhaldsstigið þar er 2,5%, ekki 5%. Hluti af því sem er að falla niður hjá Landhelgisgæslunni eru tímabundin aukin framlög sem lá fyrir að myndu renna út um þetta leyti. Það fór hins vegar inn 1,3 milljarður í fyrra. Nú er aðhaldið um 230 millj. kr., um 2,5%.
Af því að þingmaðurinn spyr um þennan frasa, hina breyttu heimsmynd, þá liggur auðvitað fyrir að íslensk stjórnvöld hafa skuldbundið sig til að verja 1,5% af landsframleiðslu í öryggis- og varnarmál. Það liggur líka fyrir í fjárlagafrumvarpinu núna að það eru aukin framlög til öryggis- og varnarmála og ég lít svo á að það sé þá fjárlaganefndar núna í framhaldinu að vinna úr því hvernig við formum þau útgjöld. Ég vil líka nefna að í nýsamþykktri þingsályktun um varnar- og öryggismál var lögð áhersla á það af hálfu fulltrúa allra flokka á þingi að efla hina borgaralegu innviði: Landhelgisgæslu, lögreglu, almannavarnir og áfallaþol. Ég nefndi að við værum herlaus þjóð. Það verðum við sannarlega áfram. Það eru engin áform um að stofna her á Íslandi. Það er mín afstaða að við þurfum að setja mjög aukinn þunga, ekki bara í fjárfestingu heldur í umræðu og vitundarvakningu um mikilvægi öryggismála. Ég lít svo á að það fari mjög vel á því og sé raunar nauðsynlegt í þeim efnum að horfa til almannavarna, horfa til greiningardeildar, sérsveitar og Landhelgisgæslu.