fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir mjög góða spurningu. Ég myndi vilja segja þetta: Í of langan tíma hefur umræða um útlendingamálin verið eftirlátin jöðrunum, það hafa verið þeir sem tala um að hleypa öllum hingað inn, tala um opin landamæri, og svo þeir sem tala um lokuð landamæri. Hvorug leiðin er farsæl fyrir Ísland þannig að ég er ánægð með að ríkisstjórnin sé að vinna út frá stefnu sem vonandi stenst tímans tönn. Markmiðið hefur verið afar skýrt: Við ætlum að ná stjórn á þessum málaflokki. Við viljum stjórn á þessum málaflokki og við viljum skynsamlegt regluverk. Það þarf að vera ákveðin festa í því. En svo viljum við líka geta verið stolt af því þegar við lítum til baka að geta sagt: Við höfum tekið vel á móti fólki.
Þess vegna er ég sjálf þeirrar skoðunar að við eigum að bæta enn frekar í, t.d. þegar kemur að íslenskukennslu, því ég lít svo á að það sé algjör lykill að því að geta tekið þátt í samfélaginu og njóta hér raunverulega jafnra tækifæra. Þingmaðurinn nefnir Úkraínu og það er búið að afgreiða úr ríkisstjórn frumvarp sem lengir heimild til dvalar úr fimm árum í sex. Í þessum málum hvað Úkraínubúa varðar höfum við sagt tvennt: Við stöndum með Úkraínubúum alla leið í þessu stríði. Hitt er að við göngum í takti við Evrópu þannig að við höfum gætt þess mjög vandlega að fylgja því sem Evrópa er að gera í þeim málaflokki.
En stutta svarið varðandi mikilvægustu áfangana: Hér voru afgreidd fjögur frumvörp í fyrra, allt frá því að vera með heimildir til að afturkalla alþjóðlega vernd og brottfararstöðina, við erum með hertari skilyrði fyrir námsmannaleyfi, við erum með afturköllun alþjóðlegrar verndar og öll Schengen-málin. En stóra stefið er einfaldlega skýr stefna og stjórn á málaflokknum.