fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir greinargóð svör. Ég er ánægður með svarið. Ég hjó eftir því að þú nefndir íslenskukennsluna. Ég tel að þetta sé algjört lykilatriði í inngildingu og að taka vel á móti fólki sem hingað kemur. Ég legg á það ofuráherslu og gerði það sem sveitarstjórnarmaður úti á landi og held að við höfum náð býsna góðum árangri þar, alla vega heyrðum við að eftir því var tekið. Ég er svo sem ekki með neina konkret spurningu fyrir þig á þessu sviði en hvet þig til að standa með þeim undirstofnunum sem starfa í þessum málaflokki.