fjárlög 2027.
Forseti. Ég reyni að svara þessu skarpt og snöggt. Það er ekki sérstakt fjármagn inni í þessu en ég vil þó geta þess að það er sjóður innan fjármálaráðuneytisins sem dómsmálaráðuneytið hefur sótt sér fjármagn í, stuðningssjóður fyrir hagræðingarverkefni og sameiningarverkefni. Það hefur gríðarlega mikil vinna átt sér stað inni í dómsmálaráðuneytinu í aðdraganda og eftir að frumvarpið var samþykkt. Með því verklagi styðjum við nýjan sýslumann og nýtt sýslumannsembætti þannig að aukinn kostnaður, vinna og stuðningur við nýtt embætti fara að miklu leyti fram í ráðuneytinu sjálfu í þremur starfshópum sem myndaðir hafa verið. Það hefur dugað ágætlega hingað til.
Hitt er síðan það að þegar við leggjum fram hallalaus fjárlög í fyrsta sinn í áratug birtist það auðvitað einhvers staðar. Í mínu ráðuneyti, eins og ég segi, eru ákveðnir málaflokkar undanskildir. Hér er ákveðin hagræðingarkrafa. Ég stend með henni en nefni það að í (Forseti hringir.) forvinnu málsins höfum við getað sótt í sjóð í ranni fjármálaráðuneytisins.