fjárlög 2027.
Frú forseti. Þegar varnarliðið yfirgaf Ísland í september árið 2006, fyrir réttum 20 árum, hurfu úr landi fimm öflugar björgunarþyrlur. Síðan hafa Íslendingar markvisst reynt að efla viðbragðsgetu Landhelgisgæslunnar á þessu sviði. Gæslan rekur nú þrjár leiguþyrlur af gerðinni Airbus H225 og leigusamningur um þær gildir til ársins 2032. Ég hef áður bent á að stórar björgunarþyrlur eru ekki hilluvara. Kaup á slíkum þyrlum krefjast vandaðs undirbúnings, skýrrar þarfagreiningar og góðs skipulags. Því er mikilvægt að hefja þessa vinnu sem fyrst. Að mínu mati er endurnýjun þyrluflota Landhelgisgæslunnar eitt besta verkefnið sem unnt er að staðsetja innan 1,5% ramma Atlantshafsbandalagsins. Þessi 1,5% rammi er vegna varnartengdra innviða, viðnámsþróttar og borgaralegs viðbúnaðar. Þyrlurnar myndu í senn styrkja varnarviðbúnað Íslands, almannavarnir, leit og björgun, sjúkraflug og öryggi á Norður-Atlantshafi.
Það sem mig langaði fyrst og fremst að spyrja út í — við tókum þessa umræðu líka í tengslum við fjárlagaumræðuna fyrir ári en það hefur ýmislegt gerst á þeim tíma. Bæði var rammagrein í fjármálaáætluninni sem við samþykktum núna í vor og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fékk svar frá dómsmálaráðuneytinu í júní varðandi þyrlukost Gæslunnar og kostnað við að setja þyrlu á Akureyri, sem var 1.100 millj. kr., 500 millj. kr. fyrir leigu á þyrlu og 600 millj. kr. fyrir þjálfun og annan kostnað vegna áhafna. Síðan kom á sama tíma, síðastliðinn vetur, stefna Íslands í varnar- og öryggismálum. Mig langar því að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra um vinnuna í ráðuneytinu vegna þess að þessi ár eru fljót að líða og það þarf virkilega langan fyrirvara. Björgunarþyrlur eru ekki hilluvara, stórar þyrlur. (Forseti hringir.) Hver er staða málsins í dag?