fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég ætla að leyfa mér að segja, af því að ég hef setið með hv. þingmanni í fjárlaganefnd og hann segir að við höfum líka rætt þetta fyrir ári, að mér líður eins og öll okkar samtöl séu um þyrlur. En það er bara mjög gott, af því að ég skil og skynja ástríðu þingmannsins fyrir þessum málaflokki og eftir að hafa verið í þessu ráðuneyti núna í 20 mánuði þá skil ég alltaf betur og betur hvað þingmaðurinn á við og hvert mikilvægið er.
Eitt sem hefur t.d. komið mér aðeins á óvart þegar maður skoðar verkefni Landhelgisgæslunnar, þegar maður skoðar verkefni þyrlnanna okkar, er hversu veigamikill þáttur þær eru í heilbrigðisþjónustu við landsmenn, grundvallarþáttur í heilbrigðisþjónustu við landsmenn og ferðamenn sem hingað koma. Í því samhengi þætti mér skipta miklu máli, komi til þess að við fáum fjórðu þyrluna, að hún verði staðsett á Akureyri. Þar held ég að hún gæti þjónað landsmönnum okkar gríðarlega vel. Svo fer þetta auðvitað saman, öryggis- og varnarmálin, leit og björgun og síðan þessi grundvallarþáttur sem heilbrigðisþjónustan er. En þingmaður sér auðvitað hvernig frumvarpið lítur út. Það er eitt að ræða að þyrla sé ekki hilluvara en þyrla er ekki fjármögnuð í þessu fjárlagafrumvarpi, því miður. Ég vildi gjarnan standa hér og segja aðra sögu en þá. En svona stendur þetta núna. Ég er þeirrar skoðunar að það sé mjög mikilvægt að horfa til fjölgunar þyrlna og ég veit að það hefur verið um þetta rætt og það er mikill áhugi innan ríkisstjórnarinnar. Það eru auðvitað ákveðnar viðbótarfjárheimildir núna til öryggis- og varnarmála og það á eftir að forma það nánar í fjárlagavinnunni hvernig þeim verður ráðstafað. Ég er þeirrar skoðunar að það færi mjög vel á því að hluti renni þar til Landhelgisgæslunnar. En liðurinn Þyrla er einfaldlega ekki í þessu fjárlagafrumvarpi.