158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[13:25]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Það er einmitt málið. Maður sá þegar fjármálaáætlun var samþykkt í júní að það er mjög litlu bætt við inn í þennan ramma sem tengist 1,5%. Nú er búið að tala um að þetta sé komið í 0,92%, það sem myndi falla undir 1,5%. Það er mjög takmarkað sem kemur inn í fjármálaáætlun á næstu fjórum, fimm árum til málaflokksins. Það er miðað við 1,5%, og að því sé náð 2035. Það er raunverulega verið að vísa málinu til næsta kjörtímabils. Ef við ætlum að ná 1,5% kemur það inn af mikilli þyngd í staðinn fyrir að þessu sé mjatlað, að jafnaði 3–4 milljarðar á ári í aukningu, til að koma þessu upp í 1,5%. Þannig að ég hvet ráðherrann til að taka þetta inn í næstu fjármálaáætlun og tala fyrir málinu. Við þekkjum það náttúrlega að til að vera verðugur bandamaður og allt sem því fylgir þurfum við að standa okkur í stykkinu (Forseti hringir.) þegar kemur að þessum málum.