fjárlög 2027.
Forseti. Eins og þingmaðurinn nefnir er auðvitað næsta samtal og ákvörðun í fjármálaáætlun, kannski ekki beinlínis í fjárlögum sem útfæra síðan fjármálaáætlun. En ég get þó sagt þetta: Á fundi sem ég átti með forstjóra Landhelgisgæslunnar, ég held það hafi verið í gær, ræddum við um greiningu á framtíðarflota Gæslunnar og þá sérstaklega með tilliti til þess að tryggja flotann áfram þegar gildandi leigutími rennur út. Það eru nokkur ár eftir af leigutímanum, ég ritaði t.d. undir einn samning til 10 ára, en þá þarf að búa í haginn og það þarf að gera það tímanlega af því, eins og þingmaðurinn segir, þyrlur eru sannarlega ekki hilluvara. Landhelgisgæslan hefur hafið þessa greiningarvinnu og ég tala fyrir því og minn ráðuneytisstjóri hefur þegar sett sig í samband við fjármálaráðuneytið um að það verði settur upp stýrihópur til að forma næstu skref. Það er eitt að fjármagna en síðan þarf líka að vinna þetta þannig að við séum með góðan fyrirvara þegar ákvarðanir eru teknar.