fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma hér til þessarar umræðu. Mig langar að reyna að átta mig aðeins betur á áformuðum aðhaldsaðgerðum innan þeirra liða sem falla undir ráðuneyti hæstv. ráðherra. Það hefur verið farið yfir þetta svona á stangli í andsvörum við hæstv. ráðherra í dag. Mig langar til að spyrja hvernig aðhaldskröfur sundurliðast innan almanna- og réttaröryggisins og hversu stór hluti á að koma frá sameiningu sýslumannsembættanna sem ganga í garð núna 1. janúar. Þetta kom að einhverju marki fram í samtölum við hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson, en mig langar sérstaklega að spyrja hvort gert sé ráð fyrir einhverjum sparnaði eða hagræðingu af áformum hæstv. ráðherra um sameiningu lögregluembætta. Þó að frumvarpið sé ekki komið fram, þó að kannski sé gengið of snemma um gleðinnar dyr, ætla ég að spyrja hvort ráðherra sé tilbúin að upplýsa um áformaðan gildistökutíma á sameiningu lögregluembættanna, komi það frumvarp fram nú á haustþingi eins og ráðherra tilgreindi hér áðan.