fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Hann spyr um málefnasviðin almanna- og réttaröryggi og svo sýslumann. Sýslumaður heyrir ekki þar undir en ég fór aðeins yfir það hér áðan hvernig fjárveitingar til sýslumannsins líta út. Þar er aðhald en það er aðhald sem er óháð sameiningunni, það hefði komið til hvort sem við værum með níu sýslumenn eða þetta nýja embætti. Það var svarið við því. Af því að við undanskiljum, eins og við framast getum, lögreglu, ákæruvald og dómstóla og það er ákveðið aðhald á sýslumönnum hins vegar — en eins og ég segi þá er það óháð sameiningunni. Hins vegar hefur það áhrif að við erum að fækka í yfirstjórnunarlaginu þannig að 1% aðhaldskrafa hefur ekki áhrif á fjölda starfsmanna hjá nýju sýslumannsembætti þegar sýslumennirnir eru hættir störfum. Hvað lögreglu varðar og fjárveitingar til hennar þá er það rétt sem þingmaðurinn segir að frumvarpið um sameiningu er ekki komið fram. En þegar við horfum á útgjöld til lögreglu í þessu fjárlagafrumvarpi þá eru það 30,5 milljarðar. Þar er hagræðingarkrafa um 300 milljónir, sem er pínulítil sneið, og verður útfærð með þeim hætti að starfsmenn aðrir en lögreglumenn eða þjónusta önnur en eiginleg löggæsla taki þá smávægilegri hagræðingarkröfu. Ég hef verið alveg skýr með það að markmið mitt með þessum sameiningum innan lögreglu sé að búa til færri og stærri lögregluembætti til að til framtíðar verði hægt að fjölga lögreglumönnum. Það eru engin fyrirheit um fleiri lögreglumenn samkvæmt þessu fjárlagafrumvarpi enda er þetta þungt frumvarp. Ég lít svo á að sem dómsmálaráðherra sé mér að takast að verja þessa framlínu með því að ekki sé verið að fara í eiginlegt aðhald á lögreglu, dómstóla og ákæruvald.(Forseti hringir.) Ég get ekki svarað því alveg skýrlega upp á punkt og prik, eða krónur og aura, hvað sameining í frumvarpi sem ekki hefur verið lagt fram mun fela í sér. Markmiðið er í öllu falli ekki hagræðing og hagræðingu sérðu ekki heldur í fjárlagafrumvarpinu.