158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[13:37]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég hefði verið illa svikin ef hv. þingmaður hefði ekki líka spurt um löggæsluna. En stóra myndin er kannski þessi, að heildarfjárframlög til löggæslu 2027 eru 30,5 milljarðar kr. Til samanburðar má nefna að fjárheimildir ársins 2025 voru 26 milljarðar kr. Fjárhæðin fyrir fjölgun lögreglumanna, 50 stöðugildi sem þingmaðurinn nefnir, 1,25 milljarður, kom inn varanlega árið 2026. Þetta eru 50 stöðugildi sem hafa verið fjármögnuð og fjármunum hefur verið ráðstafað til hvers og eins lögregluembættis. Hitt er síðan rétt sem þingmaðurinn nefnir að það hefur ekki verið ráðið í allar þessar stöður. Auðvitað eru þetta ekki allt nýjar stöður þannig að í einhverjum tilvikum var verið að gera tímabundnar stöður varanlegar. Löggæslan er undanþegin þessu 1% aðhaldi en það kemur inn aðhald upp á 0,26% sem er útfært þannig að það leggist ekki á embættin. Markmiðið er því alveg skýrt. Það á ekki að bitna á almennri löggæslu, sýnilegri löggæslu eða viðbragðsgetu lögreglu. Aðhaldið er mun vægara hjá lögreglu en annars staðar.

Varðandi sérsveitina þá er svarið einfaldlega það að það fékkst fjármagn fyrir tveimur nýjum stöðum þar í fyrra. Það eru ekki viðbætur í ár. Ég hefði mjög gjarnan viljað standa hér og tala fyrir því að svo væri. Það er hins vegar ekki niðurstaðan og ég tek undir með þingmanninum að það er ákveðið áhyggjuefni hver staða sérsveitarinnar er og hefur raunar verið í mörg ár.