158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[13:40]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Eins og ég nefndi hér áðan hafa embættin hringinn í kringum landið fengið fjármuni til þess að ráða í þessar stöður. Það er síðan verkefni lögreglustjóranna að fylla í stöðurnar og ráða í þær. Það er því embættanna sjálfra að ráðstafa þessum fjármunum en þeir eru komnir fram. Ég vil auðvitað mjög gjarnan að það verði gert og ég veit til þess að það hefur ekki að öllu leyti tekist. Varðandi fjármunina þá var upphaflega gert ráð fyrir að fjármögnun kæmi inn í áföngum, á árunum 2026–2028, en það var hins vegar ákveðið að flýta henni og fjármagna fjölgunina alla árið 2026.

Varðandi sérsveitina. Staðan er sú sem hún er og við sem þekkjum til vitum að hún er alls ekki nógu góð og það er vandi sem hefur blasað við í nokkur ár. Það hefur líka verið viðvarandi vandamál með fjármál hjá ríkislögreglustjóra. Nú er verið að vinna góða vinnu þar. Ég tel líka að sameiningarvinnan eða frumvarpið þar feli í sér ákveðin tækifæri og ég er þeirrar skoðunar að taki fjárlaganefnd nú að sér að fara að skoða stöðu sérsveitarinnar þá megi t.d. horfa á betri fjármögnun hennar í gegnum það markmið stjórnvalda að ætla að fjárfesta með markvissari hætti í öryggis- og varnarmálum.