framlög til samgangna.
Virðulegur forseti. Margt áhugavert má lesa úr nýframkomnu fjárlagafrumvarpi og þar gefst einnig tækifæri til að kanna sannleiksgildi pólitískrar orðræðu frá síðasta ári. Hver man ekki eftir slagorðum ríkisstjórnarinnar eins og „ræsum vélarnar“ og stóryrtum yfirlýsingum um að nú verði aftur farið að bora göng? Ef við horfum til útgjalda ríkisins til samgangna á þessu kjörtímabili hlýtur sú spurning að vakna hvort það hafi ekki verið ætlunin að láta vélarnar ganga a.m.k. um einhverja hríð, eða eru þær strax orðnar olíulausar? Af hverju er raunlækkun til samgangna í fjárlagafrumvarpinu um 6,3% á sama tíma og ríkisstjórnin ákvað í síðustu fjárlögum að sækja 7,6 milljarða í hækkun á veiðigjaldi, 7,5 milljarða í hækkun á vörugjöldum af ökutækjum, 3,3 milljarða í hækkun á kílómetragjaldi og nú í fjárlagafrumvarpinu fyrir 2027 4 milljarða í hækkun á kílómetragjaldi auk ýmissa krónutölugjalda, allt saman rökstutt með því að nú ætti að gera gangskör í samgöngumálum? Hvernig útskýrir hæstv. innviðaráðherra að þrátt fyrir alla þessa auknu gjaldheimtu skuli raunlækkun til samgangna vera tæpir 3 milljarðar? Og hvernig rímar það við yfirlýsingar hæstv. ráðherra um verulega aukið fjármagn til samgangna?