skatta- og vaxtahækkanir og ráðgjöf fjármálaráðs.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Það er svolítið merkilegt með þessa umræðu um skatta og gjöld að nú er þessi ríkisstjórn að klára verkefni sem var lagt af stað með í síðustu ríkisstjórn þegar kom að kílómetragjaldi, fjármálaáætlun í stjórnarmeirihluta og hjá ríkisstjórn sem hv. þingmaður studdi á sínum tíma sem ætlaði að hækka kílómetragjöld um 7,5 milljarða á næsta ári. Hér kannast fólk ekki við eigin áætlanir. Það var vissulega búið að eyða þessum útgjöldum fram í tímann, vilji til að vera með vilyrði fyrir alls konar þáttum en í dag kannast fólk ekki við eigin útreikninga og plön hvað þetta varðar. Stór hluti af þeim breyttu tekjum sem við erum að fara í á móti, af því að við erum vissulega að gefa eftir í kílómetragjaldinu, 4 milljarðar á næsta ári í staðinn fyrir 7,5 milljarða sem síðasta ríkisstjórn var búin að samþykkja í sinni eigin fjármálaáætlun — við erum að sækja tekjur þegar kemur að bönkunum, já, þegar kemur að ferðaþjónustunni að hluta til, þegar kemur að fiskveiðum, veiðigjaldi. Við höfum verið opinská hvað það varðar, enda, ef ég á að svara fyrir Samfylkinguna, var þetta eitt af því sem við töluðum fyrir í okkar stefnu, að sækja sanngjarnar tekjur þegar kemur að auðlindunum. Ég vil líka benda á að við erum í þeirri stöðu að vera að borga 170 milljarða kr. í vaxtabætur á hverju einasta ári. Þegar sú ríkisstjórn sem hér sat tók við á sínum tíma, fyrir níu árum síðan líklega, var þessi upphæð um 50 milljarðar á ári. Þetta er viðbótarkostnaður sem ríkið er að greiða og í rauninni að taka úr vasa heimilanna vegna þess að það tókst ekki að halda rekstrinum réttum megin við núllið. Það þýðir ekki að halda öllu í lágmarki til þess eins að vera með risastórt gat á ríkissjóði í mörg ár og gera það að verkum að hér skapast þensla, verðbólga, mikill verðbólgu- og vaxtaskattur. Við höfum sagt það og lofuðum því að við ætluðum að skapa aðstæður til að lækka vexti og verðbólgu með því að reka ríkið réttum megin við núllið og ekki á yfirdrætti. Það er það sem við erum að gera og það er það besta sem við getum gert fyrir veski heimilanna.