skatta- og vaxtahækkanir og ráðgjöf fjármálaráðs.
Virðulegi forseti. Ég vek athygli á því að hæstv. forsætisráðherra svaraði í engu spurningunum og er augljóslega fullkomlega villt í þykkri holtaþoku. Ég spurði hér um tekjuskattinn. Ég spurði um barnabæturnar. Ég spurði um vaxtabæturnar en lét nú vera að fara í sjúklingagjöldin. Hæstv. ráðherra þurfti bara að svara því hvort það væri venjulegt fólk sem borgaði þessa skatta, venjulegt fólk sem fær tekjur og borgar tekjuskatt, venjulegt fólk sem keyrir bíla. Er þetta ekki venjulegt vinnandi fólk? Og úr því að hæstv. ráðherra er að hækka skatta á þetta fólk, af hverju sagði hún við þetta fólk fyrir kosningar: Við ætlum ekki að hækka skatta á ykkur?
Virðulegi forseti. Hér talar hæstv. ráðherra eins og hún kom ný að málum, var í fjárlaganefnd. Hún veit heldur ekkert að WOW air fór á hausinn. Hún veit ekkert að Covid kom. Hún veit ekkert af Reykjaneseldum. Hún kemur alveg ný að borðinu (Forseti hringir.) og er ekki enn búin að svara því, manneskja sem þekkir, hæstv. ráðherra sem þekkir (Forseti hringir.) þessi mál inn og út, sem lofaði skýrt ákveðnum hlutum, er ekki búin að svara því af hverju hún sveik þessi loforð.