158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

skatta- og vaxtahækkanir og ráðgjöf fjármálaráðs.

[14:08]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Við höfum farið þá leið í húsnæðismálum að í staðinn fyrir að endurvekja vaxtabótakerfið sem síðasta ríkisstjórn lagði niður og skildi eftir 800 milljónir, þetta var tugmilljarða kerfi — síðasta ríkisstjórn lagði niður vaxtabótakerfið og já, við hefðum vissulega getað tekið ákvörðun um að snúa því við. Við ákváðum frekar að fara þá leið að styrkja almenna íbúðakerfið og fara í að styrkja hlutdeildarlánakerfið. Þannig að auðvitað er alveg hægt að færa rök fyrir því að hægt sé að gefa í í vaxtabótum. (Gripið fram í.) Þetta er bara ákveðin vegferð sem við erum að fara í.

Þegar kemur að barnabótum þá hefði ég gjarnan viljað gera betur, ég skal alveg viðurkenna það, og þetta er eitt af því sem við erum með til skoðunar, með hvaða hætti við getum styrkt það kerfi og haft sterkari skorður hvað það varðar.

Síðan vil ég líka vekja athygli á því að við höfum gert allt sem við getum til að hlífa almenningi vegna þess að stærsti einstaki kostnaðurinn sem almenningur er að lenda í er þetta verðbólguskot sem hefur verið að ganga hér yfir í mörg, mörg ár. Hún er vissulega of há, verðbólgan núna, 5,6%. Hún fór nær aldrei undir 5% á síðasta kjörtímabili þannig að þetta er gríðarlegur vaxtakostnaður sem hefur safnast upp. (Forseti hringir.) Venjulegt fólk notar líka þjónustu. Það notar heilbrigðisþjónustu og það notar aðra þætti í kerfinu. Það breytir því ekki að síðustu ríkisstjórn tókst ekki að snúa þessu við. (Forseti hringir.) (Gripið fram í.)

Hæstv. forseti. Ég hef lokið mínu máli og við getum rætt þetta saman, hv. þingmaður, hér á göngunum.