158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[15:14]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Forseti Ég mæli hér með fyrir frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga ársins 2027. Líkt og venjubundið er þá felur frumvarpið í sér margs konar breytingar á lögum í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarpsins.

Efnisatriði frumvarpsins eru fjölbreytt og hafa bæði áhrif á tekju- og gjaldahlið fjárlagafrumvarpsins. Að hluta til voru sum efnisatriði þessa frumvarps líka rædd 1. umræðu um fjárlagafrumvarpið fyrir helgina. Ég mun því aðeins stikla á stóru en vísa að öðru leyti til þess sem fram kemur í ítarlegri greinargerð með þessi frumvarpi og eftir atvikum fjárlagafrumvarpinu sjálfu.

Fyrst vil ég nefna að í frumvarpinu eru tillögur um að krónutöluskattar hækki um 5,2% í samræmi við verðlagsforsendur fjárlagafrumvarpsins. Hækkunin nær til gjalda vegna áfengis, tóbaks og nikótíns, kolefnis og bifreiða, gistinátta og innviða, Framkvæmdasjóðs aldraðra, Ríkisútvarpsins og loks nær hækkunin til kílómetragjalds á ökutæki. Að auki hækkar kílómetragjaldið um 4 milljarða en það er mikilvægt skref að því markmiði að styrkja tekjustofna af ökutækjum og eldsneyti. Ríkisstjórnir síðustu ára hafa sett sér þetta markmið og því er þessi ríkisstjórn sammála.

Áætlað er að þessar breytingar sem ég hef nefnt skili ríkissjóði samtals um 10,5 milljörðum. Þar af nemur hækkun útvarpsgjalds og gjalds í Framkvæmdasjóð aldraðra samtals 600 millj. kr. en þau tvenn gjöld hafa ekki áhrif á vísitölu neysluverðs. Að öðru leyti eru áhrif hinna breytinganna til hækkunar á vísitölu neysluverðs áætluð 0,28%.

Forseti. Lagt er til að gjöld vegna Fjármálaeftirlits og skilavalds Seðlabankans taki breytingum, að mestu leyti til hækkunar í takt við verðlagsþróun. Breytingarnar eru í samræmi við tillögur Seðlabankans. Gjöldin eru ýmist ákvörðuð sem hlutfall af eignum eða tekjum eftirlitsskyldra aðila eða föst fjárhæð. Áætlað eftirlitsgjald vegna fjármögnunar Fjármálaeftirlitsins er 3.541 millj. kr. Áætlað gjald vegna fjármögnunar skilavalds er 105 millj. kr. Gjaldhlutföll eru ýmist óbreytt eða lækka fyrir utan gjaldhlutfall þeirra sem stunda vátryggingamiðlun.

Lögð er til hækkun á gjaldhlutfalli af álagningarstofni samkvæmt lögum um greiðslu kostnaðar við rekstur umboðsmanns skuldara.

Forseti. Lögð er til 5,2% hækkun á gjaldi í Framkvæmdasjóð aldraðra. Samkvæmt því verður gjaldið 15.374 kr. á hvern gjaldanda við álagningu opinberra gjalda á árinu 2027 vegna tekna ársins 2026. Áætlað er að hækkunin skili ríkissjóði um 200 millj. kr. Jafnframt er lögð til breyting á fyrirkomulagi sjóðsins þannig að í stað þess að veita framlög í formi styrkja til rekstraraðila hjúkrunarheimila til að standa undir viðhaldi og endurbótum á fasteignum hjúkrunarheimila mun sjóðurinn standa undir leigugreiðslum á fasteignum sem nýttar eru undir rekstur hjúkrunarheimila.

Forseti. Lagt er til að fjárhæð sóknargjalds verði fastsett með hliðsjón af framkvæmd fyrri ára og að auki verði kveðið á um breytingu gjaldsins hvert ár í samræmi við almennar verðlagsforsendur fjárlaga. Þannig verði tryggður fyrirsjáanleiki og stöðugleiki í fjármögnun sóknargjalda. Fjárhæð sóknargjalds hækkar úr 1.221 kr. á mánuði fyrir hvern skráðan einstakling árið 2026 í 1.270 kr. á mánuði árið 2027.

Forseti. Gert er ráð fyrir að fjárhæð losunargjalds vegna hvers tonns gjaldskyldrar losunar, verði hækkað úr 10.123 kr. í 11.035 kr. til samræmis við breytingar á meðalverði losunarheimilda á Evrópska efnahagssvæðinu eins og það er á árstímabili sem lýkur 31. júlí árið áður. Jafnframt er lagt til að hluti þeirra lækkana úrvinnslugjalds sem tóku gildi 1. janúar 2025 gangi til baka, ýmist að hluta eða öllu leyti, þar sem þá voru ekki fyrirséðar verulegar hækkanir á endurgjaldi til þjónustuaðila í tilteknum vöruflokkum.

Forseti. Í frumvarpinu er lögð til framlenging á ákvæðum til bráðabirgða við lög um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða og lög um tryggingagjald. Ákvæðið kveður á um að starfsendurhæfingarsjóðir fái ekki tekjur af almennu tryggingagjaldi á árinu 2027. Sambærilegt ákvæði hefur verið í gildi frá árinu 2013. Eftir sem áður er gert ráð fyrir óbreyttri fjármögnun frá atvinnurekendum og lífeyrissjóðum, eða 0,10%. Gert er ráð fyrir því að breyta samkomulagi milli fjármála- og efnahagsráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra annars vegar og VIRK – Starfsendurhæfingarsjóðs hins vegar til samræmis og að á árinu 2027 fái hann framlag á fjárlögum.

Undanfarin ár hafa stjórnvöld unnið að heildarendurskoðun á örorkuhluta almannatryggingakerfisins. Gert var ráð fyrir að vinnunni lyki á þessu ári, en ljóst er að sú áætlun mun ekki ganga eftir. Af þeim sökum þykir tilefni til að leggja að nýju til framlengingu á ákvæði í lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Tillögunni er ætlað að tryggja áfram að almennar hækkanir á greiðslum almannatrygginga til örorkulífeyrisþega leiði ekki til samsvarandi lækkunar á örorkulífeyri úr lífeyrissjóðum. Hin tímabundna stöðvun víxlverkunar var síðast framlengd til og með 31. desember 2026.

Þá er lagt til til að gildistími ákvæðis í lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða verði framlengt um eitt ár eða til og með 31. desember 2027. Með því verður lífeyrissjóðum áfram óheimilt á árinu 2027 að láta almennar hækkanir greiðslna úr almannatryggingakerfinu til örorkulífeyrisþega hafa áhrif á útreikning og fjárhæð örorkulífeyrisgreiðslna til sjóðfélaga. Almennar hækkanir greiðslna almannatrygginga verða 7,3% 1. janúar 2027 miðað við forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2027. Jafnframt er lagt til að gildistími ákvæðis í lögum um tryggingagjald um framlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða verði framlengdur. Í ákvæðinu felst að á árinu 2027 mun framlagið áfram eingöngu renna til lífeyrissjóða með þyngstu örorkubyrðina. Gert er ráð fyrir að framlagið verði óbreytt milli ára, eða sem nemur 4,9 milljörðum samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2027. Það nemur 0,181% af gjaldstofni tryggingagjalds næstliðins árs.

Forseti. Hluti af aðgerðum stjórnvalda til að koma á jafnvægi í ríkisfjármálum 2027 er hækkun gjaldhlutfalls sérstaks skatts á fjármálafyrirtæki, sem í daglegu tali er kallaður bankaskattur. Gangi áform frumvarpsins eftir mun gjaldhlutfallið fara úr 0,145% í 0,254% frá og með 1. janúar 2027 á stofn til sérstaks skatts á fjármálafyrirtæki sem er heildarskuldir skattskylds aðila samkvæmt lögunum umfram 50 milljarða í lok tekjuárs. Áætlað er að hækkunin auki tekjur ríkissjóðs um 6 milljarða og að heildartekjur af bankaskatti verði 13,9 milljarðar kr. árið 2027.

Forseti. Lagt er til að framleiðniviðmið í tekjuskatti verði 0,5% næstu fimm staðgreiðsluár, þ.e. staðgreiðsluárin 2027–2031, að undanskildu fyrsta staðgreiðsluárinu 2027 þar sem það verður 0%. Næsta endurskoðun á mati á framleiðnivexti verður því vegna staðgreiðsluáranna 2032–2036. Gert er ráð fyrir því að tekjuáhrif breytinga á framleiðniviðmiði að meðtöldum hliðaráhrifum á Framkvæmdasjóð aldraðra og útvarpsgjald verði 3,1 milljarður á tekjuárinu 2027 en 1,6 milljarðar eftir það og fari vaxandi í hlutfalli við tekjuskatt einstaklinga. Jafnframt er lagt til að tímabundnar útreikningsreglur barnabóta verði framlengdar um eitt ár sem þýðir að reiknireglur og viðmiðunarfjárhæðir kerfisins verði þær sömu á árinu 2027 og á árinu 2026. Á þeim forsendum er áætlað að útgjöld vegna barnabóta nemi allt að 21 milljarði á árinu 2027 og hafi jákvæð áhrif á ráðstöfunartekjur heimila og þá sérstaklega barnafólks og lág- og millitekjuhópa.

Forseti. Til að tryggja eðlilegt samræmi í gjaldskrá Útlendingastofnunar er lögð til hækkun gjalda fyrir umsóknir um skammtímadvalarleyfi samkvæmt lögum um aukatekjur ríkissjóðs. Gert er ráð fyrir því að hækkun gjalda vegna umsókna um skammtímadvalarleyfi muni hafa í för með sér einhverja hækkun tekna í ríkissjóð, þrátt fyrir að hækkuninni sé einnig ætlað að draga úr tilhæfulausum umsóknum og þar með hafa jákvæð áhrif á umsýslu Útlendingastofnunar. Þá er lagt til að heimilt verði að fella niður umsóknar gjöld fyrir dvalarleyfi þegar um er að ræða Fulbright-styrkþega og nánustu fjölskyldumeðlima hans sem hingað koma á vegum Menntastofnunar Íslands og Bandaríkjanna.

Forseti. Lagt er til að aðgangseyrir að baðhúsum, baðstöðum, gufubaðsstofum og heilsulindum sem falla undir lög um virðisaukaskatt beri 24% skatthlutfall í stað 11% skatthlutfalls virðisaukaskatts. Breytingin er liður í áformum um að draga úr mismunun í virðisaukaskattskerfinu, auka tekjur ríkissjóðs og styrkja hlutleysi og tekjuskilvirkni virðisaukaskattskerfisins. Breytingin hefur jákvæð tekjuáhrif fyrir ríkissjóð sem áætla má 4 milljarða árið 2027. Áhrif á verðbólgu gætu orðið allt að 0,02% verði hærri virðisaukaskatti velt til fulls inn í verð þjónustunnar.

Þá er lagt til að endurgreiðsluhlutfall virðisaukaskatts vegna vinnu manna við nýbyggingu, endurbætur og viðhald íbúðarhúsnæðis verði lækkað úr 35% í 20%. Tillagan styður við markmiðið um bætta afkomu ríkissjóðs. Endurgreiðslan felur í sér frávik frá almennri skattlagningu og telst vera skattstyrkur í skilningi laga um opinber fjármál. Lækkun endurgreiðsluhlutfallsins hefur áhrif til aukningar á tekjum ríkissjóðs sem áætla má 3,6 milljarða á árinu 2027. Áhrif á verðbólgu í janúar 2027 má áætla að verði um 0,02%. Þrátt fyrir það er aðgerðin til þess fallin að draga úr eftirspurnarþrýstingi í hagkerfinu og flýta því að vaxtastig lækki og þar með kostnaður til lengri tíma litið við fjármögnun nýframkvæmda og viðhalds íbúðarhúsnæðis.

Forseti. Lagt er til að forvarnagjald vegna innviða á Reykjanesi sem er innheimt af brunatryggðum húseignum verði framlengt um eitt ár. Tekjur af forvarnagjaldinu námu 1,3 milljarði á árinu 2025. Jafnframt er lagt til að heimilt verði að selja eða ráðstafa eignum og tekjum Húsnæðissjóðs til annarra verkefna en heyra undir Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun. Skilyrði fyrir slíkri ráðstöfun er að heimildar sé fyrst aflað í fjárlögum þar sem ráðstöfunarheimildum vegna eigna ríkisins er safnað saman árlega.

Forseti Að lokum er í frumvarpinu gert ráð fyrir því að jöfnunargjald raforku og raforkueftirlitsgjald verði hækkað. Fjárhæð jöfnunargjalds raforku skal uppfærð 1. janúar ár hvert, á grundvelli tillögu frá Umhverfis- og orkustofnun. Tillagan liggur ekki fyrir á þessari stundu og er því miðað við 5,2% hækkun jöfnunargjalds í samræmi við hækkun vísitölu neysluverðs síðastliðna 12 mánuði. Verði ákvæðið að lögum mun hækkun jöfnunargjalds skila 168 millj. kr. í viðbótartekjur árið 2027. Útgjöld ríkissjóðs hækka að sama skapi þannig að áhrif á afkomu ríkissjóðs verða engin.

Forseti Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpi þessu verði vísað til efnahags- og viðskiptanefndar að lokinni þessari umræðu.