158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[15:28]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans framsögu. Eins og hæstv. ráðherra nefndi þá er erfitt að ræða þetta algjörlega aðskilið frá fjárlögum þannig að umræðan mun örugglega taka mið af því. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra sömu spurningar og ég spurði hæstv. forsætisráðherra vegna þess að ég fékk ekki nein svör. Það er í fyrsta lagi af því að bæði Samfylkingin og Viðreisn lofuðu því að hækka ekki skatta á venjulegt fólk, og ég tilgreindi það hér í fyrirspurnatíma sem hæstv. ráðherra var viðstaddur, hvort sem það er tekjuskatturinn, barnabætur, vaxtabætur, bílar, skattarnir og ýmislegt fleira, og mín spurning er einfaldlega þessi: Er þetta ekki venjulegt fólk sem greiðir þessa skatta? Þetta var mjög skýrt og eftir því tekið þegar þessu var lofað fyrir kosningar. Ef þetta er ekki venjulegt fólk, hvaða fólk er þetta þá?

Síðan er hitt að nú eru komnar tvær álitsgerðir frá fjármálaráði frá því að þessi ríkisstjórn tók við. Það er ekki ósanngjarnt að segja að það hafi ekki verið tekið tillit til þeirra ábendinga. Ég velti því fyrir mér, sérstaklega í ljósi þess að við síðustu fjármálaáætlun í meirihlutaáliti fjárlaganefndar var ekki einu sinni vikið einu orði að álitsgerðinni, hvort það séu einhverjar hugmyndir hjá ríkisstjórninni um að leggja af fjármálaráð. Það segir sig sjálft að ef við erum með fjármálaráð sem ríkisstjórnin tekur ekki mark á þá er kannski ekki mikið við það að gera. En ég skal taka það skýrt fram að ég er algjörlega mótfallin því og myndi frekar vilja að ríkisstjórnin myndi taka mið af þeirra ábendingum og í það minnsta svara þeim ef þau eru ósammála þessum ábendingum.