158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[15:35]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hæstv. fjármálaráðherra er tíðrætt um útgjöld síðustu ríkisstjórnar. Ég get tekið undir að þau voru allt of mikil, þó að þeim sé ákveðin vorkunn vegna þess sem þau voru að eiga við. Það var reyndar einn flokkur sem var ansi duglegur að benda á það og það var ekki Viðreisn. Nei, Viðreisn vildi bæta í. Nú er önnur ríkisstjórn og mann er farið að lengja eftir því að heyra hvað hún ætlar að gera. Hún er reyndar búin að vera að sýna á spilin en afsakar allar gjörðir sínar meira og minna með fyrri ríkisstjórnum.

Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. fjármálaráðherra: Finnst þér mikill metnaður í því að auka raunútgjöld um 20 milljarða óháð hlutfalli af vergri landsframleiðslu? Ég er að tala um að við erum með ríkisfjármál þar sem við erum með miklar ríkisskuldir, hæstv. fjármálaráðherra er duglegur að minna á það. Þetta er kannski í kringum 1% af heildarútgjöldum ríkissjóðs. Hefðu það ekki verið góð skilaboð að hækka ekki útgjöld milli ára og hefðu það ekki verið góð skilaboð líka að hækka ekki skatta heldur fara í meira aðhald? Við erum að tala um kannski rúmlega 3% af heildarútgjöldum ríkissjóðs, ríkisstjórnin hefði sýnt aðeins meira aðhald, bara um rúm 3%, þá hefði ekki þurft að fara í skattahækkanir og það hefði ekki þurft að auka útgjöld frá því í fyrra. Hvaða fyrirtæki á þessu landi sem væri yfirskuldsett myndi ekki ráðast í milli 3% og 4% aðhald?

Þetta er algjörlega óboðlegt og því spyr ég: Finnst hæstv. ráðherra þetta nógu mikill metnaður?