158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[15:45]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir og tek undir að við áttum ánægjulega stund þarna saman. En menn geta auðvitað rætt fram og til baka um framleiðniviðmiðin. Þau eru sett inn til þess að taka tillit til þess að það er framleiðniaukning og hér um mjög margra ára skeið var það þannig að viðmiðunartölur í tekjuskattskerfinu voru leiðréttar endrum og eins og stundum. Síðan var komið á ákveðnu fyrirkomulagi þar sem þessi viðmiðunarmörk fylgdu vísitölu neysluverðs en það var líka tekið tillit til þess að það væri framleiðniaukning og það var sérstaklega um það talað að þessi framleiðniaukning yrði metin, þ.e. að þessi viðbótarþróun skattkerfisins myndi einungis raungerast að því gefnu að það yrði framleiðniaukning. Fyrsta árið var þetta sett í 1% á ári. Nú hefur fyrsta endurskoðun kerfisins farið fram og þá kemur í ljós að það var engin framleiðniaukning til þess að réttlæta þessa þróun og samkvæmt reiknireglunum sem beitt er þá fellur hún úr 1% í hálft prósent, sem þýðir þó að á þessu tímabili hafa forsendurnar beinlínis ekki staðist. Þess vegna er sett þessi leiðrétting um 0% hækkun fyrsta árið. Þetta er einungis skattahækkun ef laun hækka. Ef þú ert með sömu laun núna og í fyrra þá getur þetta ekki verið skattahækkun vegna þess að viðmiðunartölurnar breytast og breytast meira að segja í samræmi við vísitölu neysluverðs. En ég vildi bara útskýra fyrir hv. þingmanni um hvað er að ræða.