158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[15:54]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir spurningarnar. Við höfum auðvitað ítrekað átt samtal, ég, hv. þingmaður og raunar fleiri þingmenn, um áhrif krónutölugjalda á verðbólgu og ákvarðanir ríkisins á verðbólgu. Hv. þingmaður veit auðvitað að almennt séð horfa seðlabankar í gegnum þessa tölu, þ.e. að breytingar opinberra gjalda hafi ekki áhrif á ákvarðanir þeirra og ástæðan er sú að þær velta bara út í gegnum kerfið. En ég geri mér hins vegar alveg grein fyrir því að Ísland á við svona ákveðinn strúktúrvanda að etja sem felst í útbreiddri notkun verðtryggingar sem gerir það að verkum að ýmislegt getur haft áhrif á verðbólgu þó að greiningar bæði Seðlabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sýni að það séu fyrst og fremst sveiflur í gengi og önnur ytri skilyrði sem hafa tilhneigingu til að valda verðbólgu á Íslandi, og þá viðvarandi verðbólgu. Þá getur alveg verið ástæða til þess í hagstjórnarskyni að skoða það hvort eðlilegt sé að koma í veg fyrir raunrýrnun gjaldstofna eða ekki. Þetta hefur auðvitað verið til umræðu og það kom fram m.a. í máli hæstv. forsætisráðherra núna um helgina að eitt af því sem rætt hefur verið við aðila vinnumarkaðarins eru einmitt þessar forsendur. Því samtali hefur hins vegar ekki verið lokið.

Ég myndi almennt séð, til að svara hv. þingmanni, segja: Áhrif ákvarðana ríkisins á verðbólguvæntingar, og þá sérstaklega hvað varðar krónutölugjöld og annað slíkt, eru ekki eins mikil og hv. þingmenn virðast halda. Ég vil í þessu samhengi benda á svokallaða fastskattavísitölu Hagstofunnar sem og greiningar á samsetningu hækkunar á vísitölu neysluverðs á þessu ári.