breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Frú forseti. Ég vil minna á að bankakerfið var einu sinni í eigu einkaaðila alfarið en nú er það að stórum hluta í eigu einkaaðila eða ekki á höndum ríkisins. Vegna þess að það var talað um að þetta væri áhætturekstur og það væri að einhverju leyti hægt að losna við þá áhættu þá er ágætt að rifja það upp að árið 2008 fóru þessir einkabankar verulega illa og það var ekki svo að almenningur sæti ekki uppi með neina áhættu. Ég held því að það séu veigalítil rök hvað það varðar að menn losni við áhættu. Það skiptir miklu máli að við höldum vel utan um þessar eignir.
Þegar menn tala um að selja Leifsstöð, eina hlið landsmanna úr landi, að það sé einhver lausn, þá hefur þetta verið reynt á öðrum Norðurlöndum, t.d. á Kastrup sem var selt til ástralskra fjárfesta. Hver var niðurstaðan þar? Jú, það var þannig að Danir sáu mjög á eftir þessu. Gott ef þetta er ekki komið aftur í eigu opinberra aðila vegna þess að það var þunnt eiginfjárhlutfall í Kastrup og tekjur fóru meira og minna í að greiða einhverja ofurvexti sem voru settir á fyrirtækið.
En það er áhugavert að Sjálfstæðismenn séu ekki tilbúnir að stækka kökuna. Það er búið að tala hérna margoft um hvort það eigi ekki að skoða að auka veiðar. Það er ekki mikill hljómgrunnur fyrir því og menn vilja alls ekki breyta kerfinu þar sem menn eru ekki að nýta veiðiheimildir, t.d. eins og ufsann sem er bara veiddur til hálfs af útgefnum veiðiheimildum. Menn sætta sig við það og eru ekkert gagnrýnir hér í ræðustóli yfir því að það sé margföld verðlagning á fiski heldur gera hér veigamiklar athugasemdir (Forseti hringir.) við krónutöluhækkun upp á 1 kr. En varðandi þessar stóru upphæðir og þá stóru möguleika sem er búið að tíunda hér fyrir þingmönnum (Forseti hringir.) að gætu gert gæfumuninn þá er ekki einblínt á það. Það væri áhugavert að heyra hv. þingmann ávarpa þann þátt.