158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[16:24]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Mig langar hér í örfáum orðum að fara aðeins yfir frumvarp um breytingar á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026, sem er frá hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra. Það er margt í þessu frumvarpi sem er áhugavert og tengist náttúrulega því frumvarpi sem við vorum að ræða hér fyrir helgi og kláruðum reyndar í dag, fjárlagafrumvarpinu. Þetta er hluti efnahags- og viðskiptanefndar í því. Hérna eru skattahækkanirnar, virðulegur forseti, þarna koma þær fram og hérna sjáum við í raun og veru á spilin hjá hæstv. ríkisstjórn.

Við heyrum það nú oft og sérstaklega í ræðum hæstv. forsætisráðherra að hann talar um „loforð gefin og loforð efnd“. Og hvaða loforð voru gefin? Hvaða loforð voru það sem voru gefin hér fyrir kosningar? Það var t.d. loforðið um það — er klukkan í ólagi hjá mér?

(Forseti (KÁB): Hún smellur örugglega í lag fljótlega, þannig að engar áhyggjur.)

Ég hef engar áhyggjur, minnstar áhyggjur af klukkunni. En við heyrum þetta, loforð gefin, loforð efnd, og til hverra voru loforðin? Loforðin sem voru gefin fyrir kosningar voru þau að hækka hér ekki skatta og gjöld á vinnandi fólk og fyrirtæki í landinu og almenning. Þetta voru loforðin og það er ótrúlegt að horfa á hæstv. ríkisstjórn einhvern veginn hlaupast undan þessum loforðum og skýla sér svo á bak við það að þau loforð sem voru gefin og þau loforð sem eru efnd séu þau loforð sem þau gáfu hvert öðru í stjórnarmyndunarviðræðunum. Ég skal alveg gefa þeim góðan plús í kladdann fyrir að hafa staðið við það sem þau lofuðu hvert öðru hér í stjórnarmyndunarviðræðunum. Það er gott, maður á að standa við loforð. Það er ljótt að plata. En loforðið sem þau gáfu fyrir kosningar, loforðið sem þau gáfu kjósendum fyrir kosningar hefur verið þverbrotið. Við sjáum hér að sú mynd sem er að teiknast upp er einfaldlega þessi: ef við skoðum skattahækkanir með krónutölugjöldum síðasta árs og þessa árs þá er þetta farið að nálgast 70 milljarða. 70 milljarðar, 70.000 milljónir sem eru hækkanir á sköttum og gjöldum. Og hverjir munu greiða? Jú, það er almenningur, fyrirtækin í landinu og ferðamenn miðað við þessa útfærslu hér.

Ég verð að segja það, virðulegur forseti, að fyrir mína parta finnst mér vera ansi hraustlega gengið til verks hér. Ég átti í ágætum orðaskiptum við hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra áðan varðandi krónutöluhækkanirnar, 5,2%, sem ég verð að segja að mér finnst of háar. Ég hefði talið að það væri eðlilegra í þessu árferði að miða við verðbólgutölu ef ekki verðbólgumarkmið Seðlabankans til þess að gefa bara mjög skýr skilaboð út í samfélagið um að menn hefðu trú á verkefninu, ætluðu að ná hér niður vöxtum og verðbólgu og vera leiðandi fyrir sveitarfélögin í landinu varðandi komandi fjárhagsáætlunargerð hjá þeim. Eða þá að nota verðbólguforsendu frumvarpsins sem er, ef ég man rétt, 3,6% en 5,2% gangi spá Seðlabankans eftir og við skulum nú vona að meðaltalsverðbólga ársins 2027 verði 3,6%. Þá sjáum við að þetta er umfram verðlag. Þetta er langt umfram verðlag, verulega umfram verðlag.

Ég segi það bara enn og aftur að mér finnst þetta vera röng aðferðafræði. Menn geta haft sínar skoðanir og skýringar á því af hverju þeir fara í þessa vegferð. Ég hef heyrt skýringar hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra um það að Seðlabankinn sjái í gegnum fingur sér með þessar hækkanir og þær hafi ekki áhrif á verðlag af neinu viti, þó að það segi nú hér að kílómetragjaldið og krónutöluhækkanirnar muni hafa áhrif á vísitöluna sem nemi 0,28% til hækkunar. Baðlónin munu hafa mjög lítil áhrif en engu að síður munu þau hækka vísitöluna samkvæmt greinargerð fjármálaráðuneytisins. Þetta eru ekki mín orð heldur er ég að enduróma það sem stendur hér í frumvarpinu sjálfu og greinargerð með því.

En mig langar aðeins að ræða hér um nokkra hluti í þessu frumvarpi sem ég set spurningamerki við og ég hlakka til að eiga orðaskipti um við ráðuneytið og samstarfsmenn mína í efnahags- og viðskiptanefnd þar sem þetta mun enda. Mig langar að ræða hérna kílómetragjaldið. Ef menn vilja hækka kílómetragjald þá hækka menn bara kílómetragjald. Það er bara ákvörðun sem hver ríkisstjórn eða hver fjármálaráðherra tekur hverju sinni og ber ábyrgð á og svarar fyrir út á við. En mér finnst umræðan, virðulegur forseti, hér á þinginu og úti í samfélaginu oft svo einkennileg varðandi kílómetragjaldið vegna þess að það er talað um það þannig að það hafi verið síðasta ríkisstjórn sem einhvern veginn kom kílómetragjaldinu á. Hér var meira að segja hæstv. ráðherra fyrir helgi sem talaði um það að þetta væri lækkun á kílómetragjaldinu, kom nú reyndar og baðst afsökunar á því. Hvernig var að þessu staðið? Það vill nú þannig til að ég var bara hér á þingi og hafði aðkomu að því máli þegar m.a. þetta kílómetragjald var til umræðu í þinginu. Það er alveg rétt að það var lagt fram frumvarp um kílómetragjald, tekjuhlutlaust frumvarp, núll. Hvernig endaði það? Það endaði þannig að þegar það var búið að fara í gegnum þinglega meðferð var tekin ákvörðun um að leggja frumvarpið ekki fram, klára það ekki heldur draga það til baka. Af hverju var það gert? Jú, það voru nokkrar ástæður fyrir því. Mönnum fannst m.a. of stuttur tími frá framlagningu frumvarpsins til gildistökunnar og voru ekki sannfærðir um að þessi breyting væri til hins betra. Hún væri ekki nægilega vel útfærð og það ætti eftir að hnýta marga lausa enda. Þess vegna var það þannig að þingið sjálft stoppaði málið. Það er hins vegar þessi ríkisstjórn sem klárar málið, hún fer með það áfram, leggur það fram og klárar á síðasta þingi þar sem tekjur ríkissjóðs af því voru 3,2 milljarðar, ef ég man rétt. Það var ekki lengur tekjuhlutlaust heldur var það tekjuberandi fyrir ríkið upp á 3,2 milljarða. Þannig að allt tal um það, eins og maður hefur líka heyrt í umræðunni, að kílómetragjaldið sé einhvern veginn ódýrara en gamla gjaldið stenst náttúrulega enga skoðun. Það er ríkið sjálft sem metur það að tekjurnar af breyttu kerfi séu þá 3,2 milljarðar á síðasta ári og bætir svo við 4 núna, þannig að við erum komin í rúma 7 milljarða með kílómetragjaldið. Ég spyr bara: Er þetta eitthvað sem verður árlegt? Verður þetta bara árlegt gjald sem menn munu taka ákvörðun um að hækka svo um einhverja milljarða og milljarða?

Ég tók þessa umræðu hérna, virðulegur forseti, þegar við vorum að ræða innviðafélagið vegna þess að það sem mér finnst vanta í þessa umræðu um kílómetragjaldið er einfaldlega einhvers konar heildstæð nálgun. Við erum að tala um kílómetragjald og við erum að tala um innviðagjald í Göng og brú. Síðan eru Betri samgöngur á höfuðborgarsvæðinu og allir ætla að fara að rukka af tekjur af umferð. Við þurfum að setjast niður og sjá fyrir okkur hvernig við viljum hafa þetta til framtíðar með einhverri heildstæðri nálgun þannig að við séum ekki í villta vestrinu hvað þetta varðar, sem mér finnst við svolítið vera. En þetta mun hækka, ef ég kann tölurnar rétt, kostnaðinn við vöruflutningana. Ég sá það hjá einum, og ég sel það nú ekki dýrara en ég keypti það, sem var búinn að reikna út að þetta væru um 700.000 kr. á ári fyrir flutningabílinn hans. 700.000 kr. á ári. Hvert fer sá kostnaður? Hér hafa menn verið að tala eins og þetta sé ekki neitt, þetta sé 1 kr. og eitthvað, en þær safnast saman og í þessu tilfelli safnast þær saman í 700.000 kr. sem munu fara á fyrirtæki og heimili landsins. Það er algjörlega augljóst. Enn þá sitjum við úti á landi einhvern veginn uppi með svartapétur vegna þess að það er ljóst að þær vörur sem við erum að fá hér með flutningabílum munu hækka og þær vörur sem landsbyggðin sendir frá sér munu sömuleiðis bera hærri flutningskostnað.

Virðulegur forseti. Það er bara svo margt í þessu sem mann langar að tala um og ég sé að tíminn vinnur ekki með hér í þessu máli frekar en í öðru, en bara lítið dæmi: Hér er verið að taka barnabætur niður um held ég 800 milljónir. Síðan er hérna t.d. úrvinnslugjald. Ég veit að við eigum eftir að ræða þetta í nefndinni en ég rak augun í að það er verið að hækka úrvinnslugjald á plasti per kíló úr 65 kr. í 125 kr. Ég veit ekkert hvað þetta þýðir en þetta er rosalega hátt. Á sama tíma er verið að hækka úrvinnslugjald á öðrum hlutum úr 13 í 15 kr. eða eitthvað. Maður veltir því bara fyrir sér hvernig þessar hækkanir koma til. Þetta er alveg ofboðslega mikið, þetta eru miklar tölur.

Á síðustu mínútunum sem ég á hér, í þessari ræðu a.m.k., langar mig að ræða um ferðaþjónustuna. Við þurfum bara að vanda okkur. Við þurfum að fara varlega gagnvart ferðaþjónustunni. Að hækka hér skatta á ferðaþjónustuna um yfir 10 milljarða, 50% af hagnaði greinarinnar 2025, í fyrra, er rosalega langt gengið, virðulegi forseti. Það er ofboðslega langt gengið. Ég hef oft rifjað þessa sögu upp, og get gert það hér enn og aftur, þegar við sátum í fjárlaganefnd einhvern tímann og fengum fulltrúa frá fjármálaráðuneytinu sem voru að fara yfir fjárlögin og sviðsmyndirnar yfir það hvernig næsta ár gæti litið út. Það voru þrjár sviðsmyndir; það var sú góða, það var miðlungs og svo var það hin slæma og það var ein breyta sem gat ráðið úrslitum um það hvaða sviðsmynd við myndum fá, ein breyta, og það var fjöldi ferðamanna.

Þess vegna segi ég hér við þingheim og virðulegan forseta: Við þurfum að fara varlega. Við þurfum að fara varlega með ferðaþjónustu. Þetta er atvinnugrein sem skiptir okkur alveg gríðarlegu máli. Mér finnst með þessari hækkun á baðlónin, kílómetragjaldinu og fleiru hér í þessum bandormi sem beinist að ferðaþjónustunni allt of langt gengið. En ég hef líka heyrt það hér, bæði hjá hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra og eins hjá hæstv. forsætisráðherra, að það er svona ákveðinn tónn sem gefur kannski væntingar og vonir um að menn séu eitthvað tilbúnir að bakka og ég ætla svo sannarlega að vona að við náum einhverri lendingu í þá átt í efnahags- og viðskiptanefnd núna í vetur.