158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[16:45]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra kærlega fyrir svarið. Hvað meina ég með að vaxa út úr vandanum? Ég meina það að skapa fyrirtækjunum þannig skilyrði að þau sjái tækifæri í því að stækka, eflast og geta þannig skapað meiri verðmæti sem væntanlega verða til þess að það koma auknar tekjur í ríkissjóð. Þetta er bara sú leið sem við höfum farið. Þetta er sú leið sem við fórum 2013 og við sjáum hvernig það gekk. Það gekk bara býsna vel ef ég man rétt. En ég vil bara segja það hér að lokum að það er alveg rétt sem hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra sagði áðan að hann er að koma hér með tillögu að hallalausum fjárlögum. Þetta er nefnilega tillaga. Það er lykilmálið í þessu. Það er ekki búið að ná hallalausum fjárlögum. Hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra er búinn að koma með sína tillögu og hún er hér til umræðu. Hvort hún muni ganga eftir munum við sennilega ekki vita fyrr en í ríkisreikningi sem verður birtur 2028.

Ég vona svo sannarlega, virðulegur forseti, að okkur takist að ná hallalausum fjárlögum, en ég ætla bara að endurtaka það sem ég er búinn að segja ansi oft og ætla að segja það aftur: Það má ekki kosta hvað sem er.