158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[16:52]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég hef stundum verið að hugsa það af því að það er auðvitað raunin að reynslan segir okkur að bankarnir hafa verið að velta þessu út í verðlagið þegar þeir hafa fengið aukna skattheimtu á sig. En það er ekki náttúrulögmál. Bankarnir geta líka ákveðið að standa með íslensku samfélagi og velta þessu ekki út í verðlagið og það er auðvitað bara ákvörðun þeirra sem stýra þessum fjármálafyrirtækjum. Ég velti fyrir mér hvort það geti verið hluti af þessu samkomulagi vinnumarkaðarins og Samtaka atvinnulífsins að þeir muni halda í sér með þessar hækkanir. (Gripið fram í: Já, eins og ríkið?)

En mig langar hér í seinni fyrirspurn — er ekki eitthvað að klukkunni, fyrirgefðu, virðulegi forseti? — að spyrja hann út í framsetninguna á kílómetragjaldinu. Hvort honum finnist ekki sérkennileg framsetning hjá Samtökum fyrirtækja í ferðaþjónustu að leggja það þannig fram að kílómetragjald af erlendum ferðamönnum sé tekið af hagnaði þessara fyrirtækja. Mér finnst þetta svolítið sérkennileg framsetning og mig langar að spyrja hv. þingmann hvað honum finnist um það. Finnst honum það (Forseti hringir.) ekki sérkennileg framsetning að láta sem svo að kílómetragjöld erlendra ferðamanna séu tekin af hagnaði fyrirtækja í ferðaþjónustu?