breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Frú forseti. Nú eru nokkrir dagar liðnir frá því að hæstv. fjármálaráðherra kynnti fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar og við fylgjum því eftir í dag með hinum svokallaða bandormi. Það er óhætt að segja að viðbrögð við fjárlagafrumvarpinu hafi ekki verið eins og til stóð af hálfu ríkisstjórnarinnar. Greiningaraðilar, hagsmunasamtök og aðilar á markaði hafa nánast einum rómi gefið þessu fjárlagafrumvarpi mjög gagnrýna umsögn. Meginmarkmiðið sem ríkisstjórnin virtist hafa í huga, þ.e. að þetta frumvarp myndi slá verulega á verðbólguvæntingar í þjóðfélaginu, hefur þannig engan veginn gengið eftir. Ef við förum aðeins yfir nokkur dæmi og nokkur viðbrögð þá sagði t.d. aðalhagfræðingur Íslandsbanka, eftir að hann hafði kynnt sér fjárlagafrumvarpið, að það hefði nú þegar haft áhrif á skuldabréfamarkaðinn þar sem fjárfestar væru farnir að verðleggja meiri verðbólgu inn fyrir næsta ár en áður en frumvarpið kom fram. Hann tók líka fram að gjaldahækkanir ríkisins yllu honum vonbrigðum og sendu röng skilaboð þegar kjarasamningar væru til endurskoðunar. Þetta rímar einmitt ágætlega við fyrstu viðbrögð á skuldabréfamarkaði þar sem álag á skuldabréf hækkaði. Aðalhagfræðingur Landsbankans sagði að það væri afskaplega óheppilegt að svona miklar gjaldahækkanir kæmu til og það muni líklega sjást í verðbólgumælingum um áramótin. Það fylgdi svo með að fljótt á litið yllu fjárlögin vonbrigðum með tilliti til verðbólgu. Stjórn Félags atvinnurekenda tók málið fyrir og ályktaði á stjórnarfundi sínum 10. september 2026, félag sem hefur kannski ekki verið frægt fyrir að vera sérstakur andstæðingur ríkisstjórnarinnar. Þar kom þó býsna hvass tónn þar sem fram kom að fjárlagafrumvarpið 2027 ylli vonbrigðum þó að vissulega væri jákvætt að sjá stefnt að hallaleysi. Fram kom að það ylli miklum vonbrigðum að ríkisstjórnin gengi ekki lengra í aðhaldi á útgjaldahliðinni og væri þess í stað að kjósa að sækja tugi milljarða í nýjar álögur, m.a. með hækkun kílómetragjalds og aukinni skattlagningu á atvinnulífið. Félagið lét þá líka fylgja með að það væri harðlega gagnrýnt að krónutölur ríkisins hækki og að með því væri ýtt undir verðbólgu og verðbólguvæntingar.
Virðulegi forseti. Rauði þráðurinn í þessum viðbrögðum er auðvitað sá sami og það væri auðvitað hægt að tína til talsvert fleiri dæmi. Ef við drögum þetta saman þá hafa margir lýst yfir miklum vonbrigðum með gjaldahækkanir upp á 5,2%. Þetta sé óviðunandi og sendi kolröng skilaboð út á markaðinn. Það hefur líka komið fram að ríkisstjórnin gangi allt of langt í hækkun gjalda og skatta á fyrirtæki og atvinnulíf og að alltof skammt sé gengið í aðhaldi gagnvart hinu opinbera. Með öðrum orðum, það erum ekki bara við í stjórnarandstöðunni sem tölum á þennan veg heldur líka sérfræðingar á þessu sviði, hagsmunasamtök o.s.frv. Vandinn við það að fara í svona umfangsmiklar gjaldahækkanir er kannski ekki síst hvaða skilaboð felast í því. Þegar ríkisstjórnin boðar og réttlætir að hækka sín gjöld um 5,2% myndast ákveðið skjól fyrir aðra leikendur á markaði. Þeir geta gert slíkt hið sama. Ríkisvaldið er í raun búið að missa ákveðið gagnrýnisvald, ef svo má að orði komast, eða sitt áhrifavald til að gagnrýna slíkar hækkanir hjá öðrum aðilum sem geta þá stigið fram með hækkanir af þessari stærðargráðu. Áhrifin af þessu geta verið þau að verðbólga læsist í þessu hlutfalli, þ.e. 5,2%, sem er auðvitað langt yfir öllum viðmiðum og langt yfir öllum væntingum fólks um að hún eigi að koma niður á næsta ári. Það sem meira er að með þessu fer ríkisstjórnin auðvitað beinlínis gegn þeirri leiðsögn sem Seðlabankinn veitti hér í ágúst, seinni hluta ágúst, við kynningu á nýjustu stýrivaxtaákvörðun bankans þar sem stýrivextir voru hækkaðir í þriðja sinn í röð. Þá kom fram að meginástæða verðbólgu hér innan lands væru opinberar gjaldahækkanir. Hæstv. forsætisráðherra kom þá í kjölfarið fram í fjölmiðlum og ekki var annað að heyra en að hæstv. ráðherra ætlaði að taka þetta til sín. Það var talað um að mögulega væri gengið of langt í gjaldahækkunum. Þetta mætti mögulega skoða. En svo tveimur vikum síðar er kynnt fjárlagafrumvarp þar sem akkúrat þetta sama stef er endurtekið. Öll gjöld hækkuð upp á 5,2%, þvert ofan í það sem Seðlabankinn benti á.
Virðulegi forseti. Það er þó óneitanlega sérstakt fyrir þingmenn og þingheim að koma hér og ætla sér að ræða þetta mál þegar hæstv. forsætisráðherra hefur boðað í fjölmiðlum nánast jafnharðan að líklega verði þessi hækkun afturkölluð og endurskoðuð í samtali við verkalýðshreyfinguna. Þessu er bara svona spilað út en látið fylgja með að líklega verði bakkað síðar. Hvar erum við stödd? Við erum annars vegar með þetta frumvarp en það er eiginlega jafnharðan búið að spila því út að þessi hækkun komi líklega ekki til. Þetta er svolítið áhugaverð aðferð hjá ríkisstjórninni og verður ekki annað sagt en að við séum stödd í einhverri sérkennilegri skák eða samningatækni af hálfu ríkisstjórnarinnar. Það vekur upp ákveðnar spurningar um það hvað við erum í raun að gera í þessari umræðu hér. Ég skal heldur ekki líta fram hjá því að greinargerð frumvarpsins sem við erum að ræða hér, þ.e. bandormsins, gengur þó nokkuð langt í að rökstyðja þessa 5,2% hækkun. Þar er tekið fram að með því að hækka um 5,2% sé algerlega tryggt að gjöldin haldi verðgildi sínu milli ára í stað þess að rýrna að raunvirði, eins og það er orðað. Svo segir líka í greinargerðinni að skattalækkanir hafi óbein áhrif á hagkerfið með því að draga úr eftirspurn og minnka verðbólguþrýsting. Það er nú svona verið að stíga dálítið fram og rökstyðja og réttlæta þetta allt saman. Og þó að þessi rökstuðningur sé ekki hafinn yfir gagnrýni, og ég sé ekki alveg sammála því sem þar kemur fram, verður auðvitað fróðlegt að sjá rökstuðninginn fyrir því að fara hina leiðina eins og hæstv. forsætisráðherra virðist vera að boða. Ríkisstjórnin þarf þá að finna þennan kostnað á móti annars staðar í fjárlögunum og það er látið ósagt hvaðan það á að koma. Verður það með aðhaldi eða verður það með tekjuöflun? Eða, svo að við tölum hreint út, með skattahækkunum á fólk og fyrirtæki, eins og maður býst nú við?
Þetta frumvarp kveður á um stórar og um margt groddalegar aðgerðir þegar kemur að því að sækja tekjur út í atvinnulífið. Ein af þeim er sú boðaða breyting að færa starfsemi baðlóna upp um virðisaukaskattsþrep, úr 11% í 24%. Þaðan ætlar ríkissjóður að fá 4 af þeim sirka 10 milljörðum sem stefnt er að að taka úr ferðaþjónustunni á næsta ári, grein sem var alls með hagnað upp á 20 milljarða á sínu síðasta heila rekstrarári. Hinir 6 milljarðarnir eiga að koma með ferðamannapassa og hækkun kílómetragjalds. Ég tók hér í síðustu viku þátt í umræðu við hæstv. atvinnuvegaráðherra um þetta. Þar kom þetta atriði, þessi hækkun virðisaukaskatts á baðlón, til umræðu. Ég verð að játa að það vakti ákveðna athygli mína hvernig ráðherra svaraði þessu til, þ.e. hvernig hún sæi fyrir sér að baðlónin myndu bregðast við. Svarið var einhvern veginn á þá leið að þau þyrftu einfaldlega að finna út úr því, hvort það yrði í formi hækkaðs aðgangseyris eða hvort baðlónin myndu bara taka þetta einhvern veginn á kassann, eins og það má orða það, taka þetta af sínu eigin fé eða sínum hagnaði til að greiða þessa hækkun. Á sama tíma er ríkisstjórnin að boða markaðsátak fyrir ferðamenn hingað til lands fyrir nokkur hundruð milljónir. Hún er í sama skrefinu að boða verulegar hækkanir á greinina sem munu óhjákvæmilega koma fram í verðhækkunum. Við erum að reyna að selja fólki það að koma hingað. Það er auðvitað þekkt í þessari atvinnugrein að verðlagið er einmitt það sem er okkar áskorun hér á landi. Ferðamenn eru almennt mjög hrifnir af landi og þjóð, náttúru, matnum, fólkinu. En þetta er það sem er yfirleitt nefnt, verðlagið þykir hátt. Það er óhjákvæmilegt annað en að 10 milljarða viðbótarreikningur á svona atvinnugreinar þýði að verðlag muni hækka. Og það er alveg rétt líka, sem kom fram hjá hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni hér áðan, að í mörgum tilvikum er greinin búin að selja sínar ferðir töluvert fyrir fram, jafnvel ári áður, og þessar hækkanir eru að koma á áður seldar ferðir, sem gerir verkefnið í raun enn flóknara.
Annað sem hefur vakið athygli mína hvað þetta atriði varðar er hvernig talsmenn ríkisstjórnarinnar hafa talað um þessa hækkun eins og þetta sé svona lítið og léttvægt mál. Ég held að ég fari rétt með að hæstv. forsætisráðherra líkti þessu við það að þegar hún færi í bíó með fjölskyldunni þá greiddi hún jú fullan virðisaukaskatt ofan á bíómiðann. Það voru einhvers konar rök fyrir því að hækka virðisaukaskattsþrep á baðlónin, þetta hefur verið kallað lúxusvara. Það er með miklum ólíkindum að það sé talað svona til þessara mikilvægu vaxtarbrodda í ferðaþjónustunni. Baðlón eru ekki einhver lúxus heldur gríðarlega mikilvægur áfangastaður sem hefur notið mikilla vinsælda. Bygging þeirra er gríðarlega fjárfrek. Reksturinn kostar mikið og þau þurfa á mikilli aðsókn að halda til þess að vera réttum megin í sínum rekstri. Og það er í raun og veru hálfótrúlegt að þurfa að taka þetta fram en baðlón eru ekki að keppa við aðra starfsemi hér innan lands. Við getum ekki speglað þetta út frá okkur, hvort við ætlum í bíó með fjölskyldunni eða í baðlón. Baðlón eru að keppa um hylli ferðamanna. Við erum að keppa við önnur ferðamannalönd að þessu leyti. Við erum að keppa um hylli ferðaheildsala og ferðaskipuleggjenda sem skipuleggja sínar ferðir og sitt vöruframboð með miklum fyrirvara. Við erum að tala um sérfróða aðila sem fylgjast mjög vel með því sem er að gerast, fylgjast vel með umræðunni, breytingum og hreyfingum í greininni á hverjum stað. Það er því ekkert smámál þegar svona stór breyting er gerð í einu skrefi. Ákvörðun um að hafa baðlón í 11% virðisaukaskattsþrepi var heldur ekki tekin svona einhvern veginn, hún er ekki úr lausu lofti gripin. Baðlónin er hluti af fjölmörgum undanþágum í lögum um virðisaukaskatt sem koma fram í 14. gr. laganna, en þar er tiltekin ákveðin starfsemi sem er í þessu lægra þrepi.
Ég leyfi mér að vekja athygli á 1. tölulið þar sem talað er um fólksflutninga. Í 2. tölulið er talað um útleigu hótel- og gistiherbergja og aðra gistiþjónustu. Í 3. tölulið er talað um þjónustu ferðaskrifstofa, ferðaskipuleggjenda og ferðafélaga. Í 8. lið er talað um sölu á matvörum og sölu á áfengi. Í 13. tölulið er talað um aðgangseyri að baðhúsum, baðstöðum, gufubaðstöðum og heilsulindum og í 14. tölulið er svo talað um ferðaleiðsögn. Það þarf engan sérfræðing í skattarétti til að átta sig á ástæðum þess að þessir liðir enda allir í þessu undanþáguákvæði. Þetta er augljóslega vegna þess að við erum að reyna að tryggja samkeppnishæfara Ísland þegar kemur að ferðamennsku. Í raun mætti fara með þau gleraugu sem ríkisstjórnin hefur sett upp á alla þessa liði og spyrja hvort þetta sé ekki bara einhvers konar lúxus. Ætti þetta ekki bara allt að hækka upp í 24%? Það er nóg af tekjum til að sækja þar. Það hlýtur þá að vera einhver lúxus að fara út að borða. Það hlýtur að vera lúxus að ferðast um landið með leiðsögumanni eða kaupa sér far með rútu eða leigja sér hótelherbergi. Það blasir við að þessi rökstuðningur stenst auðvitað enga skoðun.
Virðulegi forseti. Annar stór liður sem ríkisstjórnin sækir í og fram kemur í þessu frumvarpi sem við ræðum hér í dag er bankaskatturinn sem á að hækka um 6 milljarða. Svona mikil hækkun mun vitaskuld hafa áhrif á lánakjör og vaxtakjör til heimila og fyrirtækja. Annað er einfaldlega óhjákvæmilegt. Af því ég var að hlusta hér á umræðuna áðan, m.a. á hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur, þá getum við ekki horft fram hjá því að svona hækkun hefur áhrif. Nú þegar hafa komið fram greiningar frá formanni fjármálaráðs sem telur að þetta gæti skert útlánagetu bankanna um 50 milljarða. Við getum auðvitað ekki leyft okkur, virðulegi forseti, að hugsa þannig að bankarnir græði svo mikið að þeir hljóti bara einhvern veginn að finna út úr þessu. Það er ekki ábyrg framsetning. Við hljótum að þurfa að reikna dæmið til enda. Ef þetta hefur engin áhrif þá hlýtur næsta spurning að vera hvort við ættum ekki bara að hækka bankaskattinn miklu meira, sem væri þó sérstakt því að hann er einna hæstur hér á Íslandi af þeim löndum sem við berum okkur saman við. Það má líka í þessu samhengi vitna til þess sem formaður Viðreisnar, hæstv. utanríkisráðherra, sagði um bankaskattinn á sínum tíma, það var árið 2019; að bankaskattur væri allt of hár og það skilaði sér beint út í verðlag bankanna. Það má taka undir þau sjónarmið.
Ég vil svo að lokum nefna eitt atriði, virðulegi forseti, til viðbótar sem er endurgreiðsla á virðisaukaskatti vegna íbúðarhúsnæðis. Í fjárlögum og bandormsfrumvarpinu kemur fram að kveðið er á um að lækka endurgreiðslur úr 35% niður í 20%. Í þessu felast auðvitað líka ákveðin skilaboð. Skilaboðin gagnvart byggingarmarkaðnum og verktökum eru þau að reikna megi með enn frekari kólnun. Það á í raun og veru að vera enn minna að gera á næsta ári. Þetta hlutfall hefur verið af ýmsum toga í gegnum tíðina. Á köflum var þetta 100% endurgreiðsla sem er gjarnan gert til að reyna að örva byggingarmarkaðinn. Lengi vel var þetta 60%. Þetta hefur verið 35% nú um skeið en nú er lagt til að það lækki enn frekar. Ég nefni þetta vegna þess að staðan á byggingar- og fasteignamarkaði er mjög þung nú þegar. Verktakar og byggingaraðilar sitja margir hverjir uppi með stóran lager af íbúðum sem hreyfast ekki, seljast ekki. Hár vaxtakostnaður rífur svo í og étur upp eigið fé í verkefnum og jafnvel fyrirtækjunum sjálfum. Nú þarf að gæta að því að við búumst við því að hagkerfið sé að kólna og í því samhengi kunna að vera rök til að halda þessu hlutfalli lágu. En ég vek athygli á því að við erum að ganga enn lengra. Við erum að lækka það enn frekar. Ég spyr mig með sama hætti, virðulegi forseti: Hvaða greiningar liggja þarna að baki? Hvað með verktaka sem ætla t.d. að reyna að finna sér ný verkefni þegar líður á næsta ár, ná kannski loksins að koma sér út úr erfiðu verkefni sem tekið hefur langan tíma að klára? Auðvitað hefur þetta bein áhrif á það verkefnaframboð. Og hver er yfir höfuð framtíðarsýn ríkisstjórnarinnar hvað þessi mál varðar? Hvernig sjáum við fyrir okkur að markaðurinn muni rétta úr kútnum aftur? Hvernig sjáum við fyrir okkur að þessi risastóri lager af íbúðum fari einhvern veginn út?
Virðulegi forseti. Ég sé að tími minn er að klárast. Stóra málið við þetta frumvarp er auðvitað að það er ekki fyrr búið að leggja það fram fyrr en það er búið að boða breytingar á því, að sennilega muni flest af þessu breytast. Við erum því að einhverju leyti enn þá í nokkru myrkri hvað þetta varðar. En ég vil hvetja ríkisstjórnina til þess, þegar kemur að fjárlögum, fjárlagafrumvarpinu og þessu frumvarpi, að endurhugsa stóru strokurnar; minni hækkanir, minni skattlagningu á atvinnulíf og heimili. Göngum lengra í aðhaldinu. Höfum það bak við eyrað að þegar verið er að óska eftir því að bankar og baðlón og hinn og þessi úti í samfélaginu taki hluti á kassann þá gengur þessi ríkisstjórn ekki undir það fordæmi sjálf, hún er að hækka gjöld eins og hún mögulega getur.