158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[17:29]
Horfa

Árni Helgason (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka þingmanninum fyrirspurnina. Það er gaman að heyra að hv. þingmaður er ekki hrædd við orðið skattar og ég held að það sé í sjálfu sér enginn hér í þessum sal. Ég held að við deilum öll þeirri sýn, þó að það sé örugglega með mismunandi blæbrigðum og mismunandi pólitískum skoðunum, að við byggjum á skattheimtu. Mín pólitísku viðhorf eru þau að hún eigi að vera hófleg og við megum aldrei líta fram hjá áhrifum hennar. Ef skattar eru svona mikil snilld og töfralausn væri væntanlega lítill vandi að hækka þá nánast út í hið óendanlega til að afla ríkissjóði tekna til að gera allt sem okkur dettur í hug. Ég held að við hljótum líka að deila þeirri sýn að slíkt er auðvitað aldrei raunhæft. Við þurfum alltaf að vera að finna eitthvert jafnvægi og það er kannski þess vegna sem ég geri og hef gert athugasemdir við hvað mér finnst þetta fjárlagafrumvarp fara t.d. hart í ferðaþjónustuna, tekur einn tiltekinn geira. Það væri fróðlegt að heyra viðhorf þingmannsins til þess hvort henni finnist þeim byrðum alveg eðlilega skipt. Það eru ekki bara baðlón sem lenda þarna undir heldur ferðaþjónustugeirinn í heild sinni.

Hv. þingmaður nefndi, eins og margir stjórnarliðar hafa gert, þessa tölu, 850 milljarða rúmlega í halla. Við þekkjum öll ástæðurnar. Þetta var tímabil ótrúlegra ytri áfalla, hvort sem það var fall WOW air, Covid eða jarðeldar, og auðvitað er það þannig að þegar svona óvæntar neyðaraðstæður koma upp er erfitt að setjast niður og skattleggja þjóðina til þess að glíma við það. Þá reynir á það hvernig ríkissjóður er settur og sem betur fer vorum við búin að standa okkur hvað það varðar afskaplega vel. Ég held að við hljótum öll að geta verið sammála því. Frá árunum á undan, 2012 eða 2013, hvar sem við viljum setja það nákvæmlega niður, fram að þessum tíma hafði ríkissjóður verið rekinn mjög vel og í mörgum tilvikum réttu megin við núllið. Við áttum fyrir þessu en auðvitað þurfti að taka einhver lán til þess að bjarga þessu, koma okkur í gegnum þetta. En ég held að í einhvers konar samhengi hljótum við að horfa á þetta tímabil þannig.