breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Frú forseti. Frumvarpið sem við ræðum hér er fyrst og fremst skattahækkunarpakki ríkisstjórnarinnar, sem á að brúa hallarekstur ríkissjóðs. Fyrir mér er þetta það frumvarp sem sýnir endanlega að ríkisstjórnin ræður ekki við verkefnið. Í því ljósi held ég að við verðum að setja þetta í samhengi við það sem ríkisstjórnin er að gera. Ríkisstjórnin er að leggja skatta á heimili landsins þvert á gefin loforð. Það er komið í ljós. En metnaðarleysið í þessum fjárlögum og þessum bandormi er slíkt að ég held að fólk átti sig ekki á því. Þess vegna vil ég setja þetta í samhengi. Ríkisstjórnin hefði getað sleppt því alfarið að hækka skatta á fólk og fyrirtæki í landinu, og þar með staðið við loforð sitt, með því einu að draga úr útgjöldum um 1%.
Ef við setjum þetta í samhengi við bókhald heimilis sem er með útgjöld upp á 500.000 kr. á mánuði þá erum við að tala um u.þ.b. 5.000 kr. Umrætt heimili hefði þurft að draga úr útgjöldum um 5.000 kr. á mánuði. Heimilið hefði haft það val að forgangsraða betur, finna út úr því, eða tala við einhvern vin og segja: Heyrðu, ert þú til í að borga fyrir mig, ertu til í að gefa mér, 5.000 kall á mánuði? Myndu mörg heimili gera það, biðja vin sinn um að borga 5.000 kall á mánuði svo að viðkomandi þyrftu ekki að taka til hjá sjálfum sér? Væru það mörg heimili sem myndu gera það? Nei. Ríkisstjórnin gerði það. Það er það sem ríkisstjórnin er að gera. Hún er ekki að taka til heima hjá sér og hún er ekki að taka til í útgjöldunum og þetta er stærðargráðan. Þetta er stærðargráðan sem þessi ríkisstjórn treystir sér ekki í, 1% gegn því að standa við kosningaloforðin. Ef ríkisstjórnin hefði viljað sýna enn þá meiri metnað hefði hún getað sleppt því að auka útgjöld milli ára. Ríkisstjórnin segist ekki vera að auka útgjöld af því að hún vill alltaf tala um hlutföll, gott og vel. En ef henni væri alvara með að taka til í ríkisrekstrinum ætti hún að sýna það í verki með því að hækka ekki útgjöld. Umrætt heimili sér það sennilega ekki fyrir sér að hækka útgjöld á næsta ári. Heimilin lifa í raunheimum. Ætti þetta sama heimili að stefna að því að auka útgjöld upp í 505.000 kr. og bara lifa í voninni af því að það ætlar sér að ná í meiri tekjur á næsta ári? Væri það hugsunarháttur heimilanna? Við munum örugglega fá meiri tekjur þannig að ég ætla bara að hækka útgjöldin, en hlutfallslega ætla ég ekkert að hækka útgjöldin. Þetta sama heimili er rosalega skuldsett og það sem ríkið er að gera er að auka við skuldir.
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar koma fram í viðtölum og segjast ekki vera að auka við skuldir. Af hverju? Jú, út af verðbólgunni sem þau bjuggu til sjálf. Þau eru með skýringar á því af hverju þau eru að auka við skuldir. Það eru í raun og veru ekki skuldir, það er bara skýring á því af hverju skuldirnar eru að hækka. Ef ríkisstjórnin hefði haft virkilegan metnað hefði hún auðvitað dregið enn meira úr útgjöldum. Það sem þessi ríkisstjórn talar um sem aðhald er fyrst og fremst frestun verkefna og vannýttar fjárheimildir. Það er þetta aðhald sem þessi ríkisstjórn er að tala um. Á meðan þau eru að auka útgjöld en ekki draga úr þeim þá er ekki hægt að tala með sama hætti um aðhald. Af hverju? Þá er þetta bara forgangsröðun. Þau eru að forgangsraða með þessum hætti. Þau ætla að fresta verkefnum. Þau ætla ekki að draga úr útgjöldum. Þau segjast ætla að fara í erfið verkefni en þau eru ekki að fara í erfiðu verkefnin. Það sést klárlega í þessu frumvarpi. Ef ríkisstjórnin hefði viljað skila hallalausum fjárlögum og standa við kosningaloforðin þá værum við kannski að tala um 2–3,5%, eftir því hvort þau vilja hækka útgjöld á milli ára eða ekki. Hvaða fyrirtæki á þessu landi sem væri yfirskuldsett myndi ekki draga úr sínum útgjöldum um 3%? Ekkert fyrirtæki á landinu myndi gera það. Það myndi enginn banki, bankarnir fá reyndar líka að finna fyrir því, taka það í mál hjá fyrirtæki sem væri yfirskuldsett að það ætlaði ekki einu sinni að minnka útgjöld um 3% þegar tækifærin eru alls staðar til þess. Nei, þessi ríkisstjórn ákvað að svíkja öll kosningaloforðin og það var næstum því — ég veit ekki hvort maður á að gráta eða hlæja en hæstv. fjármálaráðherra kom hér áðan til að svara fyrir það af hverju hann væri að svíkja kosningaloforðin. Hann sagði: Það var bara eytt svo miklu hér á síðasta kjörtímabili. Bíddu, fyrirgefðu, það vita það allir. Þið gáfuð samt þessi loforð. Þið gáfuð loforðin um að þið ætluðuð ekki að hækka skatta. Þið vissuð alveg að hverju þið voruð að ganga og fólkið kaus ykkur út á það. Við erum að tala um 3% og þið væruð með hallalaus fjárlög, þið mynduð ekki auka útgjöld ríkissjóðs og ekki hækka skatta. Er þetta til of mikils ætlast af ríkissjóði? Hvers lags metnaðarleysi er þetta eiginlega ef ríkisstjórnin treystir sér ekki í meira aðhald?
Þetta er það frumvarp sem sýnir mér að þessi ríkisstjórn á að fara frá. Þessi ríkisstjórn er að eyðileggja meira en hún er að græða, og þá er ég að tala um sár heimilanna. Svo bætist það ofan á að þetta eru ekki bara 3% heldur veit ríkisstjórnin hver áhrifin verða og þetta stendur í frumvarpinu. Hún veit að þetta mun auka á verðbólguna. Hún veit hver áhrifin verða á heimilin. Þetta er miklu dýrara en 20 milljarðar að raunvirði sem þessi útgjöld eru að aukast um. Þetta eru 80 milljarðar milli ára, 20 milljarðar í raunútgjöld. Þetta er að hafa miklu meiri áhrif og ríkisstjórnin veit það. Reyndar eru til hagfræðingar í landinu sem segja að verðlagsuppfærsla krónutölugjalda hafi ekki áhrif; þeim var bent á það í fyrra að þau hefðu áhrif. Þetta ætti mögulega við ef ríkisstjórnin myndi ekki á sama tíma auka útgjöld. Þá gæti hún kannski borið því fyrir sig að krónutöluhækkanirnar væru ekki jafn slæmar. Það er ekki þannig. Ríkisstjórnin er að auka útgjöld á sama tíma. Af hverju ætti útkoman þá að verða önnur en síðast? Við munum öll hvað gerðist síðast. Verðbólgan fór upp og löngu seinna kom ríkisstjórnin og ætlaði að kenna olíuverði um, heimsmarkaðsverði á olíu.
Þá vil ég líka minna á að þegar heimsmarkaðsverð á olíu fór að stíga upp voru flest lönd í heiminum sem ætluðu að lækka skatta á eldsneyti búin að því tveimur mánuðum á undan ríkisstjórninni. Ríkisstjórnin lofaði því að hún myndi grípa til aðgerða eftir páska í fyrra ef ástandið stefndi í að verða jafn slæmt og raun bar vitni. Það var áður en ríkisstjórnin lofaði þessu, áður en vandamálið í Hormússundi kom í ljós. Það var áður sem hún lofaði því. Svo kemur vandamálið upp og olíuverðið hækkar. Ríkisstjórnin kemur þá loksins eftir páska, eftir að hafa tekið sér tvo mánuði í að horfa á önnur lönd gera þetta, með eitthvað, ekki til að vinna á eigin ógöngum heldur sýndi hún allavega lit hvað þetta varðar; ekki hvað sínar eigin ákvarðanir varðar sem voru alveg hræðilegar fyrir heimilin. Eins og ríkisstjórnin sem hér var á undan — og ég var ekki ánægð með hana og ég held að sumir þar innanborðs hafi ekki einu sinni verið ánægðir enda hætti hún. En mig óraði ekki fyrir því að við gætum mögulega fengið verri ríkisstjórn. Það má þó alla vega segja um hina ríkisstjórnina að allt hafi stefnt í rétta átt. En hvað gerist? Þessi ríkisstjórn tekur við og klúðrar öllu.
Árið 2025 fór þessi ríkisstjórn tugi milljarða fram úr í útgjaldaaukningu. Það dugði þeim ekki. Árið 2026 var mesta útgjaldaaukning milli ára sem nokkur ríkisstjórn hefur boðað fyrr eða síðar. Sama ríkisstjórn og er að segja heimilum landsins að hún sé að stunda aðhald. Þetta var 2026. Og hvað kemur í ljós núna? Áætlanir fyrir árið benda til þess að hallinn muni aukast um tugi milljóna. Þetta eru verk þessarar ríkisstjórnar, ekki þeirrar fyrri heldur þessarar. Hallinn mun aukast um tugi milljóna og ef einhver man eftir því þá var 0 kr. peppið í fyrra að ná stöðugleikareglu. Hvernig haldið þið að komið sé fyrir stöðugleikareglunni árið 2026? Haldið þið að hún sé að nást? Það var ekki miklu sem átti að muna. Nei, nú erum við að tala um að þessi ríkisstjórn er búin að auka hallann um tugi milljarða. Það stefnir alla vega í það miðað við áætlanir. Ég veit ekki hvort ríkisstjórnin hyggst gera eitthvað í því. Henni mun örugglega ekki detta aðhald í hug. Það munu sennilega verða auknir skattar á landsmenn.
Ég á ekki mikinn tíma eftir en ég verð að koma aðeins inn á hverja og eina skattahækkun. Ég ætla að byrja á kílómetragjaldinu. Það er eitt af þeim atriðum þar sem ríkisstjórnin talar alltaf um fyrri ríkisstjórn. Ég vil minna á að fyrri ríkisstjórn keyrði þetta alla vega ekki í gegn. Þessi ríkisstjórn, sem er náttúrlega bara embættismannastjórn, keyrði allt í gegn sem embættismennirnir réttu þeim og ráðherrar í ríkisstjórninni koma hér í pontu og tala um kjark til að klára málin. Ég verð þá að gefa fyrrverandi hæstv. fjármálaráðherra það að hafa haft kjark til að stoppa embættismennina af með þetta frumvarp; það átti alla vega að vera tekið hlutlaust eins og lagt var upp með það áður. Ekkert land í heiminum hefur lagt þetta fram með álíka hætti. Við bentum ítrekað á þetta, við bentum á gallana. Og hlustaði ríkisstjórnin? Nei, ekki frekar en þegar bent var á hvaða áhrif það myndi hafa á krónutöluhækkanirnar í fyrra. Þá reyndum við að fá þau til að láta þetta taka gildi örlítið síðar. Nei, þau hlustuðu ekki á það. Í staðinn var þetta keyrt áfram og innleiðingin búin að vera í tómu rugli. Fólkið hjá Skattinum er alla vega að reyna sitt besta og bjarga miklu en við erum að fá í fangið hér langan lista til að leiðrétta þessi lög af því að þau eru ekki að virka. Ég mun þurfa að fara í aðra ræðu til að ræða þessa skatta sérstaklega.
En mig langar að reyna að komast aðeins lengra. Bankaskatturinn — algjört skilningsleysi hjá fulltrúum ríkisstjórnarinnar. Þau tala hér samhengislaust um það hvað bankarnir græði, að það sé nóg til. Þetta er svo mikil móðgun við skattgreiðendur og heimili þessa lands að maður á eiginlega ekki til orð. Því er fleygt fram að bankarnir græði 90 milljarða. Við erum búin að fara yfir það hverjir eru eigendur, það er ríkissjóður og það eru heimili landsins að mestu. En samhengislaust: Hver er arðsemi eigin fjár? Ég bara veit ekki hvort meiri hlutinn veit það. Arðsemi eigin fjár umfram stýrivexti er 4% hjá bönkunum. Þá langar mig að spyrja: Hvað telur þessi ríkisstjórn eðlilega ávöxtun? Í því umhverfi sem nú er í boði ríkisstjórnarinnar, hávaxtaumhverfi, heyrist mér að ríkisstjórnin sé að reyna að ýta öllum sem eiga fjármuni yfir í það að geyma þá bara inni á bankabók. Það fer ekki að verða gott að taka áhættu með peningana sína með þessa ríkisstjórn hér við borðið. Ég ætla svo að reyna að koma aðeins inn á ferðaþjónustuna. Sagan er sú með baðlónin að þau voru í 0% þrepi 2014. Það getur vel verið að það eigi að hækka eitthvað. En þá vil ég segja eitt: Það er ekki sérstök ívilnun að vera í lægra þrepi. Hér á landi eru tvö skattþrep og annaðhvort ertu í því neðra eða í því efra. Það er ekki ívilnun að vera í neðra skattþrepi. Það er ákvörðun að hér eru tvö skattþrep. Ríkisstjórnin þarf að hætta að tala um þetta sem ívilnun. Þá þarf hún að útskýra: Ætlið þið að flytja allt upp í 24% þrepið? Eða hvað eruð þið að meina með ívilnun?
Ég kemst ekki lengra og óska eftir því að verða sett aftur á mælendaskrá því að ég hef hvergi nærri lokið máli mínu.