158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[17:58]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur kærlega fyrir fyrirspurnina. Ég er svo sammála. Ég er búin að vera að hugsa þetta. Þetta er svo undarlegt. Þetta passar ekki við vegferðina sem við vorum að fara í með Evrópusambandið, maður hélt að kannski gæti eitthvað gott komið út úr þeirri vegferð, til að mynda að þau væru þá sjálf ekki að skekkja samkeppnina sem þau töluðu um að þau vildu laga. Sértækir bankaskattar eru að verða þeir hæstu á byggðu bóli. Það er nefnilega svolítið fyndið líka að svo eru fulltrúar ríkisstjórnarinnar alltaf að tala um að hagnaður bankanna sé svo mikill. Samt miðast þessi bankaskattur, sem mun hækka núna, við skuldir bankanna. Þannig að hljóð og mynd fara ekki saman, finnst mér.