breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Frú forseti. Ég held að staðan sé bara sú að ríkisstjórnin sagðist geta gert tvennt í einu, verið í þessari Evrópuvegferð og sinnt öðrum málum. Það hefur komið í ljós að hún gat það ekki. Það fór allt púður í Evrópusambandsvegferðina og miðað við þingmálaskrána er ekki mikil bjartsýni um hvernig t.d. verðbólguvæntingar ættu að verða betri. Ég vona svo innilega að þetta samtal leiði til einhvers góðs. En ég óttast að ef vegferðin verður að minnka krónutölugjöldin þá muni það bitna á okkur annars staðar í staðinn fyrir að ríkisstjórnin taki til í ríkisfjármálunum. Og já, kannski hef ég ekkert betra svar en þetta.